Freyr - 01.05.2001, Page 62
Ur kjötmati í
fjárræktafélögunum haustið 1999
Ljóst er að með breyttu
kjötmati haustið 1998
fengu bændur landsins í
hendur tæki sem getur
nýst þeim gífurlega mikið til að
bæta framleiðsluna ef þær upplýs-
ingar sem þar fást eru notaðar til
hins ítrasta í ræktunarstarfinu. Þess
vegna er eðlilegt að nokkuð ítar-
lega sé gerð grein fyrir niðurstöð-
um þessa þáttar í umfjöllun um nið-
urstöður úr fjárræktarstarfinu. Ljóst
er einnig, þegar þessar niðurstöður
eru skoðaðar með hliðsjón af um-
fjöllun um aðra þætti eins og af-
kvæmarannsóknir, lambaskoðun og
sýningar, að verulega mikið sam-
Jón Viðar
Jónmundsson,
Bænda-
samtökum
íslands
ræmi er á milli þeirra niðurstaðna
sem eru að fást á öllum þessum
stöðum. Þannig verða hlutirnir
einnig að vera, á annan hátt er ekki
von til að verulegur árangur náist.
Ljóst er að ekki hefur enn náðst
að samræma matið á milli slátur-
húsa nægjanlega. Slíkt eru í raun
eðlilegir barnasjúkdómar slíkra
breytinga í upphafi eins og breyt-
inganna á kjötmatinu. Hins vegar
held ég að ætla megi að með því
starfi, sem nú er í gangi hjá yfir-
kjötmatinu, þá náist á fáum árum sú
samræming sem þarf að vera í
þessum efnum. Hins vegar er ljóst
að á meðan umrætt ósamræmi er
fyrir hendi þá verður að gæta vissr-
ar varfæmi við ályktun út frá niður-
stöðum þegar verið er að bera sam-
an niðurstöður sem fengnar em úr
mati í ólíkum sláturhúsum. Þrátt
fyrir þessa annmarka er engu að
síður ljóst, þegar farið er að skoða
niðurstöður, að aðrir þættir, eins og
raunverulegur munur á milli búa, er
feikilega mikill í matinu.
Mikilvægasta hagnýting á niður-
stöðunum í ræktunarstarfinu byggir
samt á samanburði sem gerður er
innan einstakra búa og þar skiptir
umræddur munur á milli sláturhúsa
engu máli ef öllum dilkum búsins
er slátrað í sama sláturhúsi.
Kjötmati breytt
í tölulegan skala
Við alla framsetning og úr-
vinnslu á niðurstöðum kjötmatsins
er þeim breytt yfir á tölulegan skala
til úrvinnslu. Þó að vonandi flestir
lesendur þekki orðið þá útreikninga
skulu þeir samt rifjaðir hér upp
þannig að engum misskilningi
valdi. Mat fyrir gerð er flutt á tölu-
legan kvarða með því að gefa P
flokk gildið 2, O flokk gildið 5, R
flokk gildið 8, U flokk gildið 11 og
E flokkurinn hefur tölugildið 14.
Umbreyting á fitumatinu fer þannig
fram að fituflokkur 1 fær tölugildið
2, fituflokkur 2 gildið 5, fituflokkur
3 gildið 8, fituflokkur 3+ gildið 9,
fituflokkur 4 gildið 11 og fituflokk-
ur 5 gildið 14.1 sem stystu máli má
því segja að eftir því sem meðaltal
fyrir gerð er hærra er matið betra
Gerð 1999
□ Félögin ■ Utan
Flokkun fyrir gerð hjá sláturlömbum úr fjárræktarfélögunum og utan félaganna
haustið 1999.
Fita 1999
l l Félögin ■ Utan
Fituflokkun í fjárræktarfélögunum og utan félaganna haustið 1999.
62 - FR6VR 6-7/2001