Freyr - 01.11.2001, Blaðsíða 2
Bandaríkin og ESB
bera saman bækur sínar
Forystumenn bændasam-
taka, innan ESB og í
Bandaríkjunum koma
reglubundið saman til
fundarhalda þar sem þeir bera sam-
an bækur sínar. Sl. haust var Salz-
burg í Austurríki fundarstaðurinn.
Fram kom á fundinum að framan
af árinu liefðu horfur í bandarískum
landbúnaði verið góðar, tekjur
bænda fóru vaxandi, verð á jarð-
næði fór hækkandi og útflutningur
búvara jókst. Þetta hefur nú snúist
við. Hryðjuverkin 11. september
breyttu viðhorfum neytenda þannig
að sala búvara minnkaði og jafn-
framt dró úr áhuga fyrirtækja á Ijár-
festingum, sem hvoru tveggja varð
enn til að auka samdrátt í banda-
risku efnahagslífi.
Bretar gerðu grein fyrir baráttu
sinni gegn gin- og klaufaveiki. Tal-
ið er næsta víst að veikin hafi borist
til Bretlands með sýktu, óskoðuðu
kjöti. Sá lærdómur hefur verið
dreginn af faraldrinum að barátta
gegn gin- og klaufaveiki verði að
fara fram um allan heim, viðbrögð
við smiti þurfi að vera snögg, við-
búnaður góður og landamæragæsla
traustari.
Atleiðingar kúariðunnar fara
hins vegar dvínandi í Bretlandi og
neysla nautakjöts á mann er nú
þegar orðin meiri en árið 1995.
í umræðu um nýja tækni í land-
búnaði, m.a. um erfðatækni, héldu
bandarísku fulltrúamir fram hinum
miklu möguleikum sem fælust í
þessari tækni og þeim framfomm
sem þetta gæti skilað landbúnaðin-
um. Fulltrúar ESB tóku undir þá
skoðun að vissu marki en bentu á
að þær framfarir hefðu ekki ætíð
bætt hag bænda.
Franz Fischler, yfirmaður land-
búnaðarmála innan ESB, sat fúnd-
inn. Hann vakti athygli á að land-
búnaðarstefna ESB og Bandaríkj-
anna ætti margt sameiginlegt. Þau
stefndu bæði að miklum alþjóða-
viðskiptum með búvömr, þau vildu
tryggja bændum sínum öryggi í af-
komu, taka tillit til umhverfísins og
tryggja hollustu matvæla.
A hinn bóginn gagnrýndi hann
einnig vemlega stefnu Bandaríkj-
anna í landbúnaðarmálum, sem
hefði á síðari ámm leitt til mjög
aukinna opinberra framlaga til
greinarinnar. Hann lét í ljós að ESB
væri reiðubúið að ræða lækkun út-
flutningsbóta á búvömm í næstu
samningalotu innan WTO ef allar
gerðir útflutningsbóta væru þar
undir. Bandaríkin beita oft öðmm
formum útflutningsbóta en beinum
sfyrkjum, svo sem greiðslufresti.
Franz Fischler kvað ESB einnig
reiðubúið að lækka ffamlög til land-
búnaðar innan samsandsins, ef önn-
ur starfsemi tengd landbúnaði, svo
sem styrkir til umhverfismála og
orkuffamleiðslu, nyti áffam styrkja.
Þá lagði hann áherslu á að ESB
óskaði eindregið eftir að fleiri mála-
flokkar en viðskipti yrðu til umfjöll-
unar í næstu samningalotu WTO,
svo sem byggðamál og dýravemd.
Bandarísku fulltrúarnir voru
óvenju hógværir í svömm sinum.
Þeir tóku undir það að landbúnað-
arstefna beggja megin Atlantsála
þurfi að vera sem líkust, en bættu
því við að það væri stefnan í smá-
atriðunum sem skipti máli, (“the
devil is in the details”). Þeir vildu
einnig aðgreina núverandi stefnu
og framtíðarstefnuna, sem verður
til umræðu hjá WTO. Miklir styrkir
til bandarísks landbúnaðar um
þessar mundir, geta þannig verið í
samræmi við kröfú um lægri sfyrki
í framtíðinni, héldu þeir fram.
(Internationella Perspektiv
nr. 32/2001).
Altalað á kaffistofunni
Á liðnu haust gerðist það á Hvanneyri, sem endranær á haustin, að
ekið var skarni á hóla, þ.e. tæmt haughúsið. Við það gaus upp fnykur
um Hvanneyrarstað, auk þess sem mykjuslettur féllu á malbikað og
steinlagt hlaðið, þannig að tæplega var fært um á "dönskum skóm".
Þetta varð umræðuefni á kennarastofu skólans og í framhaldi af því
tilefni að eftirfarandi ljóði, eignuðu Bjama Guðmundssyni, kennara:
Úr lyrískri haustsvítu
Laufskníðið fellur haustgult og hljótt tiljarðar,
hvarvetna sjáum vér uppskeru' hins gjöfula sumars,
ilmgrœnu túngrösin hneigja sín höfuð til svarðar
... heyrðu mig annars:
- assgotans óskapleg skítalykt liggur hér yfir?
Vér göngum í leiðslu, hugsandi til alls hins horfna,
hugurinn reikar um guðshús og gripa- vió hlaðið
þar önnin og andinn eiga sér bústaði forna
... ósköp að sjá mig:
- blánkuskór mínir kámaðir kynstrum af drullu ...
Morgunjhtg vœngjaðra haustgesta vekur oss þanka,
víst er það lífrœnt að næringu' sé skilaó til jarðar
hundruðum saman í tonnum, dreifðum með tanka,
... takk, má eg segja:
- að blessaðar kusumar komast enn af - án vængja ...
2 - pR€VR 11/2001