Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2004, Blaðsíða 5

Freyr - 01.11.2004, Blaðsíða 5
ir bændur að ná að vera með 1,5 lamb á á og allmargir á bilinu 1,7 til 1,9. Viltu lýsa sauðfjárbúskapnum á Grænlandi? Fjárbúskapurinn er allur á vest- urströnd Suður-Grænlands, frá Ei- ríksfirði og að heita má suður að Hvarfi, syðsta odda Grænlands. Þetta svæði er það sem norrænu landnámsmennimir kölluðu Eystri-Byggð og standa búin í dag á sömu stöðum og landnáms- mennimir reistu þau fyrir 1100 ár- um, enda þótt sauðfjárbúskapur hafi ekki verið endurvakinn fyrr en eftir 1930. Það sýnir hve land- námsmennimir voru snjallir að finna bestu staðina fyrir bú sín. I dag er fjárbúskapurinn ekki frábmgðinn frá því sem gerist hér á landi enda hefur hann tekið stakkaskiptum síðustu 20-25 árin. Aður treystu bændur á vetrarbeit- ina því að ræktun og heyfengur var sáralítill og vorhret ollu mikl- um ær- og lambadauða. Fjárfellis- ár vom mörg og sum afar slæm, s.s. 1949 og 1967, þegar um það bil helmingur ijárstofnsins féll en árið áður (1966) hafði fjárfjöldinn verið um 40 þúsund ær, það mesta sem um getur í sögu Grænlands en túnstærðin tæplega 80 hektarar. Síðasta fellisár var að ég held 1977. Það þurfti því að gera stór- átak i túnrækt ef gera ætti sauð- íjárræktina að lífvænlegum at- vinnuvegi. Þetta átak hófst með samningn- um við RALA. Þór Þorbergsson fyrrverandi tilraunastjóri á Skriðuklaustri var ráðinn ræktun- arráðunautur og vann þama mikið og gott verk, bæði með kennslu og ákveðinni verkstjóm. En það er enginn leikur að rækta á Græn- landi, það er svo jarðgmnnt að það má varla hreyfa jarðveginn án þess að upp komi grjót og Grettis- tök sem verður að fjarlægja. Eg er alveg sannfærður um að enginn bóndi hér á landi mundi leggja í ræktun á svona landi. En þeir verða að gera þetta og það er að- dáunarvert hvaða árangri þeir ná. í dag er ljárstofninn í kringum 20 þúsund vetrarfóðraðar ær og tún- stærðin alls um 900 hektara með um 4 tonna meðaluppskem af hektaranum sem þeir uppskera með nýjustu heyskapartækni líkt og við Islendingar. Hversu stór eru jjárbúin þarna? Þetta em yfirleitt ijölskyldubú, oft með á bilinu 300-600 fjár á fóðmm. Núorðið er húsakostur fyrir féð yfirleitt ágætur því að upp úr 1990 fara þeir að byggja skemmur með innréttingar að ís- lenskri fyrirmynd og við það lag- aðist vinnuaðstaðan. A ámnum 1978-1988 vom Grænlendingar í ESB og fengu þaðan háa styrki til að efla sauðíjárrækt og til fjárhús- bygginga. Þeir byggðu mörg fjár- hús á þessum tíma en þau voru óhentug að mörgu leyti. Það vom grindur í þeim en kjallarar mjög gmnnir og eiginlega miðaðir fyrir beitarfé, einnig var mikið af stoð- um og stólpum í húsunum þannig að erfitt var að athafna sig í þeim. Hvernig hefur gengið að koma upp rœktunarhefð i fjárbúskapn- um eins og er að finna hér á landi? Skipulagt kynbótastarf og skýrsluhald, eins og við þekkjum, hefur enn ekki verið komið á hjá öllum bændum en stefnt er að því. Með fullkomið skýrsluhald eru nú aðeins sex bú með yfir 2000 fjár á skýrslu. Eru grœnlenskir bœndur fjár- glöggir? Já, það eru margir bændur þarna fjárglöggir, líkt og íslenskir starfs- bræður þeirra. Þeir gefa hins veg- ar ekki fénu nöfn eins og margir góðir íjárræktannenn gera hér, en fleiri og fleiri em famir að nota númerakerfi á ær og lömb, en það er ekki fullkomið. Marka þeir féð? Nei, yfirleitt ekki, þeir hafa ekki löggild mörk eins og við enda held ég að það tíðkist hvergi ann- ars staðar nema ef til vill í Færeyj- Freyr 9/2004 - 51

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.