Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2004, Blaðsíða 23

Freyr - 01.11.2004, Blaðsíða 23
diplomagráður í fiskeldisfræðum og ferðamálafræðum fór fram við hátiðlega athöfn í Hóladóm- kirkju hinn 27. ágúst. Alls braut- skráðust 10 nemendur af fiskeld- isdeild og 3 af ferðamáladeild. Að þessu sinni brautskráðist fyrsti Qarneminn af ferðamála- deild, en það er Þórunn Sigþórs- dóttir úr Stykkishólmi, sem jafn- framt hlaut hæstu einkunn af ferðamáladeild. Hæstu einkunn af fiskeldisdeild hlaut Bára Gunnlaugsdóttir. Við athöfnina var undirritaður samstarfssamningur milli Hóla- skóla og Ferðamálaskólans í Kópavogi. Brauðskráðir með diploma i ferðamálafræðum: Guðrún Þóra Gunnarsdóttir deildarstjóri, Inga Bryndis Ingvarsdóttir, Auróra Friðriksdóttir og Þórunn Sig- þórsdóttir. Molar Skógar Argentínu á FALLANDA FÆTI Á síðustu 70 árum hafa tveir þriðju hlutar skóga í Argentínu horfið. Á 19. öld var skóglendi í Argentínu um 160 milljón hektar- ar, árið 1914 var það komið nið- ur í 105 milljón hektara, árið 1959 í 59 milljón hektara og nú er það á bilinu 28 - 45 milljón hektarar. Á síðari árum hafa skógarnir einkum vikið fyrir soja- baunaræktun. í nyrðri hluta skógarbeltis Arg- entínu hefur maís- og hveitirækt lengi verið hefðbundin atvinna íbúanna, en á síðari árum hafa stór fyrirtæki keypt upp landið til sojabaunaræktunar. Miquel Bonasso, formaður umhverfisráðs spænska þings- ins, hefur krafist þess að neyð- arástandi verði lýst yfir og allt skógarhögg verði bannað í landinu, en talið er að bæði teg- undir dýra og jurta séu í útrým- ingarhættu á stórum svæðum. Þá breytist veðurfarið við útrým- ingu skóga og hætta er á að jarðvegur eyðist jafnframt því sem flóð í ám og vötnum verða algengari. Sojabaunir eru ein mikilvæg- asta útflutningsvara Argentínu og framleiðslan hefur þrefaldast síðan 1997. Argentína er nú orð- ið þriðji stærsti framleiðandi sojabauna í heiminum með ár- lega framleiðslu upp á 35 milljón tonn. (Landsbygdens Folk nr. 40/2004). ESB OG FAO TAKA HÖNDUM SAMAN UM VERKEFNI í ÞRÓUNAR- HJÁLP Embættismannaráð ESB og Matvæla- og landbúnaðarstofn- un Sameinuðu þjóðanna, FAO, hafa tekið höndum saman um að berjast gegn fátækt og hungri í þróunarlöndunum. Aðilarnir hafa stofnað samstarfsráð til að móta starfsaðferðir og ákveða hvaða verkefni ber að leggja áherslu á. Fyrsta verkefnið verð- ur að tryggja íbúum fátækra landa mat, sem og að styrkja sjálfbæra nýtingu náttúruauð- linda í dreifbýli þessara landa og efla menntun fólksins. Fram- kvæmdastjóri FAO, Jacques Diouf, hefur lýst yfir ánægju sinni með þetta verkefni og lagt áherslu á að ekki sé unnt að berjast gegn hungri í heiminum nema með víðtæku samstarfi þeirra sem að því koma, en talið er að 840 milljón jarðarbúa búi við viðvarandi hungur. Embættismannaráð ESB og FAO hafa átt samstarf í þessu efni frá því 1991. Fram að þessu hafa þessir aðilar hrint í fram- kvæmd 116 verkefnum, sem kostað hafa 108 milljón evrur. Flest verkefnin hafa varðað tækniaðstoð við framleiðslu mat- væla, jafnt í landbúnaði og við fiskveiðar. (Landsbygdens Folk nr. 41/2004). Freyr 9/2004 - 23 |

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.