Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2004, Blaðsíða 9

Freyr - 01.11.2004, Blaðsíða 9
en í dag eru þau grænlensk t. d. höfuðborgin Godthaab nefnist nú Nuuk og Julianehaab Qaqortoq. Það sama má segja um manna- nöfn, þar hafa þeir tekið upp grænlensk nöín í staðinn fyrir þau dönsku sem þeir voru skírðir. Annað óréttlæti, sem gerði Grænlendinga að annarsflokks borgurum í sínu eigin landi, voru lögin um ráðningu embættis- manna, en þau kváðu um að ríkis- ráðnir starfsmenn, fæddir í Græn- landi, fengu lægri laun en þeir, sem voru ekki fæddir þar. Auðvit- að særði svona óréttlæti stolt Grænlendinganna. Telur þú Grœnlendinga fœra um að standa á eigin fótum í framtíð- inni? Um það er erfítt að segja. Græn- land er risastórt land og erfitt. Byggðimar em strjálar og sam- göngur mjög erfiðar og rándýrar. Heilbrigðis- og menntakerfi við svona aðstæður verður ávallt dýrt. Atvinnulífið er tiltölulega ein- hæft. Helsti atvinnuvegur þeirra er sjávarútvegur og em rækju- veiðar og rækjuvinnsla þar uppi- staðan, og þar getur bmgðið til beggja vona eins og við þekkjum. Flest aðföng til allra framkvæmda þarf að flytja langar sjóleiðir um erfíð og hættuleg hafsvæði. íbúar Grænlands era nú rúmlega 50 þúsund og ég held að það verði erfítt fyrir þá að reka sjálfstætt þjóðfélag eins og sakir standa, en sá tími mun ömgglega koma og það í náinni framtíð að þeir verða færir um það. Það er reyndar auð- fundið að unga fólkið er mun ákveðnara í að sækjast eftir fullu sjálfstæði en það eldra. En svo eiga þeir auðlindir? Já, áreiðanlega em þama verð- mætir málmar í jörðu. Grænland er eitt elsta land heimsins í jarð- fræðilegum skilningi, en ég held að hingað til sé þetta tiltölulega lítt kannað. Þeir hafa ekki efni á að standa fyrir því sjálfír og sá námugröftur, sem þar hefiir farið fram, hefur verið í höndum er- lendra námufélaga og mér er til efs að Grænlendingar sjálfír hafi haft nein ósköp út úr því. Annars er ég ekki vel kunnugur þessum málum, en hef þó komið í tvær námur, krýólít námuna við Iv- igtut, sem nú er aflögð, og gull- námu í nánd við bæinn Nanortal- ik, sem nýlega er hafín vinnsla í. Hafa Grænlendingar hagnast á herstöðinni í Thule og öðrum hernaðarumsvifum Bandaríkja- manna? Eg skal ekki segja um það. En hitt veit ég að Thulefólkið hagn- aðist ekki á henni. I Thule var sér- stakt veiðimannaþjóðfélag með sérstaka menningu og þegar her- inn kom þangað var fólkið flutt nauðungarflutningi á nýjan og mikið verri stað þar sem veiðivon- in brást að mestu og hin gamla veiðimenning aflagðist. Um þessa flutninga hafa staðið löng og ströng málaferli og held ég að þeim sé ólokið ennþá. Veiðistað- urinn í kringum Thule er nú gjör- ónýtur vegna mengunar. Auk þess hrapaði þar í nánd flugvél, ein- hvemtíma á sjötta eða sjöunda áratugnum, með kjarnorku- sprengjur innanborðs en þessu var haldið leyndu þar til á síðustu ár- um, enda þótt svæðið kynni að vera þrælgeislavirkt. Bandaríski herinn hreinsar ekki sóðaskapinn eftir sig þar frekar en annars stað- ar eins og við þekkjum. M.E. Altalað á kaffistofunni Húnvetningar græða landið Stjóm BÍ hélt stjómarfund í höfuðstöðvum Landgræðslunnar í Gunnarsholti í lok september sl. Tekið var griðarlega vel á móti stjómarmönnum. Að fundi lokn- um var stjóminni kynnt starfsemi Landgræðslunnar. Sveinn Run- ólfsson landgræðslustjóri hafði orð fyrir heimamönnum og kynnti síðan aðra þá sem fram komu. Kynnti hann Bjöm Bark- arson sérstaklega sem Vestur- Húnvetning og síðan Asu Ara- dóttir og Asgeir Jónsson sem Austur- Húnvetninga. Aðrir vom ekki kynntir með þessum hætti. I lokin lét Gunnar Sæmundsson í Hrútatungu þess getið hvað hann færi stoltur og ánægður frá Gunn- arsholti. Þar væri starfsemi öll hin besta, stjómandi góður sem kynni að meta sitt starfsfólk og þann mannauð sem þar væri við störf. Og þá sérstaklega að Sveinn hefði byijað á að kynna Vestur-Húnvetn- inginn, þá Austur-Húnvetninga, síðan kæmu bara hinir. Varð af þessum ummælum nokkurt glens og Jóhannes Sig- fússon kom með þessa vísu: Ekkert mun á langri leið Landgræðsluna þvinga. Þó hún verði að nota í neyð nokkra Húnvetninga. Þegar Gunnar var á heimleið hringdi Georg Jón Jónsson á Kjörseyri í hann og spurði frétta. I lok samtalsins sagði Gunnar Georgi frá þessu glensi í Gunn- arsholti. Morguninn eftir barst eftirfarandi vísa frá Georg: A Landgræðslunni er Ijóta standið lengi var þar málum blandió. En hér kom ráðið, hœgan andið, Húnvetningar grœða landið. Freyr 9/2004 - 9 |

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.