Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2004, Blaðsíða 34

Freyr - 01.11.2004, Blaðsíða 34
Bætl nærlngarástand fólks í þró- unarlðndum er forgangsverkefni róunarhjálp hefur lengi hjakkað í sama farinu og fátt bendir til þess að ríku löndin hyggist breyta fyr- irkomulagi hennar. Af þeim ástæðum er það enn mikilvæg- ara en ella að sú hjálp, sem veitt er, komi að sem allra bestu notum. En á hvað ber að leggja áherslu? Um það er ekki ein- ing. Til að ráða bóta á því hefur dönsk stofnun sem fjallar um mat á gagnsemi þróunarhjálp- ar og breska blaðið The Econ- omist látið gera rannsókn á við- fangsefninu. Rannsóknin fólst í því að metinn var mikill fjöldi verkefna til hjálpar þróunar- löndum út frá efnahagslegum árangri þeirra. I ljós kom að af 13 verkefnum sem töldust skila góðum eða mjög góðum hreinum hagnaði gengu fjögur út á að bæta fæðuframboð til fólks. Þá gengu tvö verkefni út á að auka steinefni og snefílefni í fæðunni af þeim sex verkefnum sem voru í sérflokki um gagnsemi. Ein ástæða þess að verkefni, sem taka á næringarástandi, fá svona góðan dóm er að gagnsemi þeirra hefur langtímaáhrif á marg- an hátt. Einstaklingur sem fær nóg að borða og hæfílegt magn af steinefnum og vítamínum veldur samfélaginu minni kostnaði og er meiri styrkur fyrir atvinnulífíð heldur en einstaklingur sem er vannærður. Samkvæmt rannsókn Alþjóða heilbrigðisstofnunarinn- ar, WHO, skilar 10% lengri æfí fólks 0,3 - 0,4% meiri árlegum hagvexti. Að auki hefur það komið í ljós að böm sem fá ónóga næringu tvö fyrstu árin eiga miklu erfíðara með að læra að lesa, skrifa og reikna en hin. Þau bjarga sér því síður í lífsbaráttunni. Hvers kyns vannæring er gífur- lega mikið vandamál í þróunar- löndunum. Um milljarður manns á jörðinni er vannærður og þar af er fjórðungur böm. Þrír fjórðu hlutar allra vannærðra býr í dreif- býli og allra verst staddir era hinir landslausu. Um 4,5 milljarðar jarðarbúa, konur að meirihluta, skortir jám í fæðuna. Afleiðingin er blóðleysi, þrekleysi og léleg heilsa. I Bangladesh er álitið að jámskortur í fæðu fólks dragi úr þjóðarfram- leiðslunni um 8%. Þá skortir tvær milljónir manna joð í fæðu en það veldur röskun á starfsemi skjaldkirtils og seinkun á andlegum þroska hjá bömum. Þá skortir milljónir bama A-vítamín, en það leiðir m.a. til blindu. Um 17% af bömum í þróunar- löndum fæðast of létt, undir 2,5 kg. Verst er ástandið í sunnan- verðri Asíu þar sem 30% bama em of létt við fæðingu, í Suður- Ameríku em þau 10% og í Afríku 14%. Ef fæðingarþungi þessara bama hækkar um hálft kg eykur það lífslíkumar um 14% . Til að auka lífslíkur bama þarf að verja mæðumar gegn malaríu, kynsjúk- dómum og jámskorti og fjölga þannig mæðmm sem eru með böm á brjósti. Rannsóknir hafa sýnt að A-vít- amíngjöf er mjög hagkvæm og út- gjöldin skila sér 140 falt til baka. Erfíðara er að áætla hagnað að aukinni tækni í búskapnum. Rann- sóknir hafa þó sýnt að betri sáð- vömr, minni jarðvegseyðing, auk- in vökvun o.fl. skili sér margfald- lega þegar til lengdar lætur. Fjárfesting í nýrri tækni er tryggasta leiðin til að auka tekjur og þar með lífskjör fólks í fátæk- um löndum sem nú býr við við- varandi hungur. Aukin framleiðni kemur jafnframt fólki í þéttbýli í þessum löndum til góða. Þess er þvi að vænta að áður- nefnd rannsókn kennd við Kaup- mannahöfn leiði til þess að þeir sem ijalla um þróunarhjálp, jafht í fátækum löndum og ríkum, veiti matvælaframleiðslu og bættu mataræði aukinn forgang. (U.B.Lindström, Landsbyggdens Folk nr. 38/2004). Moli Bann við innflutning Á FUGLAKJÖT TIL ESB FRAMLENGT ESB hefur framlengt bann sitt við innfiutningi á fuglakjöti frá As- íu til 15. desember í ár. Áður átti banninu að Ijúka 15. ágúst en komiö hefur i Ijós að fuglainflú- ensutilfelli eru enn að koma upp í ýmsum löndum þar, svo sem í Thailandi, Kambodíu, Indónesíu, Japan, Laos, Pakistan, Kína, Suður-Kóreu og Vietnam. Ýmis þessi lönd telja þó að þar hafi nú þegar tekist að vinna bug á veik- inni. (Land Lantbruk nr. 32-33/2004). | 34 - Freyr 9/2004

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.