Freyr - 01.11.2004, Blaðsíða 24
Landbúnaðarháskólinn á
Hvanneyri
Brautskráning kandídata og búfræðinga vorið 2004
Hinn 28. maí sl. fór
fram brautskráning
nemenda frá Land-
búnaðarháskólanum á
Hvanneyri með hátíðlegri at-
höfn í Reykholtskirkju. Við
það tækifæri voru í fyrsta
sinn útskrifaðir nemendur af
umhverfisskipulagsbraut,
með 90 eininga BS-próf, en
þessi deild hefur verið starf-
rækt við skólann síðan haust-
ið 2001.
Að þessu sinni brautskráðust 18
nemendur af háskólastigi. Af
þeim voru þrír með kandidatspróf,
BS-120 einingar, allir af búvís-
indabraut.
Með BS-90 eininga próf braut-
skráðust 15 nemendur, þar af voru
sex af búvísindabraut, fjórir af
landnýtingabraut og fimm af um-
hverfisskipulagsbraut.
Úr bændadeild brautskráðust
29, þar af sjö sem stunduðu tjar-
nám við skólann.
Hæstu einkunn þeirra sem tóku
120 eininga próf hlaut Hallfríður
Ósk Ólafsdóttir, nreðaleinkunn
8,24. Af þeim sem tóku 90 ein-
inga próf var Oddný Steina Vals-
dóttir hæst með meðaleinkunnina
8,40. Hæstu einkunn fyrir BS-rit-
gerð hlutu þau Lena Jóhanna
Reiher og Borgar Páll Bragason,
bæði 9,0.
Hæstu einkunn á búfræðiprófí
hlaut Sigríður Ólafsdóttir, 9,02.
Þetta er í annað sinn sem nem-
endur útskrifast eftir að hafa
stundað allt sitt háskólanám við
LBH eftir að skólinn var formlega
gerður að háskóla með lögum árið
1999. Við skólann er nú boðið upp
á nám á íjórum sviðum, auk al-
rnenns búfræðináms, þ.e. í búvís-
indum, landnýtingu, umhverfis-
skipulagi og skógrækt.
Útskriftarnemendur frá Hvanneyri vorið 2004 á tröppum Reykholtskirkju. (Ljósm. Áskell Þórisson).
124 - Freyr 9/2004