Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.2004, Blaðsíða 7

Freyr - 01.12.2004, Blaðsíða 7
þetta bú, vegna þess að við kaup- um heybinding og plöstun af verktaka. Það sem við gerum er að slá túnin og snúa, en við kaupum þennan dýrasta hluta. A sínum tíma, þegar við tókum við, var hér úr sér gengið þurrheysúthald og ég er þar að auki með heymæði. Það lá því fyrir að við yrðum að endurskoða þennan rekstrarlið. Við lögðumst annars vegar yfir það reikningsdæmi að kaupa rúllubindi- og pökkunarvél og reka þær og hins vegar að kaupa þessa þjónustu af verktaka og nið- urstaðan var afgerandi. Það er engin spuming fyrir okkur að það borgar sig að kaupa þessa þjón- ustu fremur en eiga þessar dýra vélar og reka þær og ég tel alveg nauðsynlegt að menn fari að opna betur augun fyrir þessari stað- reynd. Heyskapurinn er einn af fjárfrekustu útgjaldaliðum bænda og því er afar mikilvægt að menn skoði ofan í kjölinn þessa út- gjaldaliði.“ Mun ódýrari leið VIÐ FÓÐURÖFLUN „Því miður er það svo að jafn- vel yngri bændur vilja ekki velta þessu fyrir sér og hafa áður en þeir vita af fest kaup á alltof dýr- um búnaði sem getur aldrei borg- að sig. Einhvern veginn finnst mönnum að þeir eigi að vinna þetta allt saman sjálfir, vinna frá morgni til kvölds við heyskapinn og vera í vélaviðgerðum á nótt- unni. Ut úr þessari miklu vinnu er afraksturinn óskaplega rýr miðað við að skipta við verktaka. Við höfum aðgang að mjög góðum verktaka hér í sveit, sem er Garðsbúið, sem við höfum af- skaplega góða reynslu af. Þetta eru menn, sem hægt er að treysta, og þeir koma þegar þeir segjast ætla að koma. Helstu rök þeirra, sem eru á móti því að fela verk- tökum að rúlla og plasta heyið, Tækjabúnaður í mjaltabásnum í fjósinu á Hranastöðum var endurnýjaður í sumar í tengslum við viðamiklar endurbætur á fjósinu. Mynd: Óskar Þór Halldórsson. era þau að ekki sé hægt að treysta því að verktakinn komi þegar heyið er orðið þurrt. Á móti má spyrja, hvað gerir bóndinn þegar heyið er þurrt og rúllubindivélin bilar? I eitt einasta skipti hefur það gerst að Garðsmenn gátu ekki komið til okkar sama dag og um var beðið vegna vélarbilunar. Það hafa vissulega ekki allir að- gang að tryggum verktökum en önnur leið gæti verið að skoða betur sameign eða samrekstur véla til að ná niður þessum kostn- aði sem vissulega fylgir véla- eigninni. Við greiddum verktak- anum 600 þúsund krónur fyrir þjónustu hans sl. sumar, þ.e. fyr- ir rúllubinding, plöstum og leigu á múgavél. Til viðbótar kemur kostnaður við slátt og snúning. Ég fullyrði að þessi kostnaður við heyskapinn er síst meiri en ef við ættum þessar vélar sjálf og þyrftum að standa straum af öll- um kostnaði sem þeim fylgdi, t.d. vaxta- og rekstrarkostnaði,“ segir Amar VIÐAMIKLAR BREYTINGAR Á ÞRJÁTÍU ÁRA GÖMLU FJÓSI I haust var endumýjað íjós tek- ið í notkun á Hranastöðum. Það lá fyrir þegar þau Ásta og Arnar keyptu Hranastaði að fara yrði í töluverðar endurbætur á Qósinu og að þeim hefur verið unnið sleitulaust undanfarna mánuði. „Við höfðum áhuga á að stækka búið, en það lá ljóst fyrir að það væri ekki unnt nema því aðeins að fara í miklar endurbætur á íjósinu. Húsin sjálf, bæði ijós og hlaða, voru vel byggð, en hins vegar var kominn tími á að endumýja inn- réttingar. Við lágum lengi yfír þvi hvaða leið við ættum að fara í þessu, m.a. skoðuðum við fjöld- ann allan af íjósum sem hafa ver- ið endumýjuð. Úr varð að við ákváðum að kaupa stóran hluta af búnaði íjóss á Þórisstöðum á Svalbarðsströnd, þar sem mjólk- urframleiðslu var nýverið hætt. Við tókum þar niður m.a. kjarn- fóðurbás, búnað í mjaltabás, allar milligerðir og settum hér upp. Áð- Freyr 10/2004 - 71

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.