Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.2004, Blaðsíða 13

Freyr - 01.12.2004, Blaðsíða 13
Tafla 2. Helstu mál á einstaklingsstíum fyrir kálfa. Fyrir kálfa að 50 kg lífþunga: ...................................... - lágmarkslengd á stíu.....................................1,0 m - lágmarksbreidd á stíu ...................................0,8 m Fyrir kálfa allt að 100 kg lífþunga.................................. - lágmarkslengd á stíu.....................................1,2 m - lágmarksbreidd á stíu ...................................1,0m Bil milli lóöréttra rimla I stíuhlið ......................0,08-0,1 m kjarnfóður. Á þann hátt fæst möguleiki á betra eftirliti með þeim fyrstu vikumar. Staðsetning Aðstöðu fyrir smákálfa ætti að staðsetja í nánd við mjólkurhús og/eða þar sem auðvelt er að veita reglubundið eftirlit og þar sem ekki er hætta á dragsúg. Gólf Stíugólfið þarf að vera þannig að hland og þunn mykja eigi greiða leið ffá legusvæði kálfsins þannig að legusvæðið haldist þurrt en einn- ig mjúkt. Besta leiðin til að tryggja þetta er að láta gólf stíunnar hallast ffam og staðsetja þar rennu sem má skola. Jafhframt er mikilvægt að nota undirburð undir kálfana og þar sem aðgengi að undirburði er tak- markað má minnka þörfína eitthvað með því að nota gúmmímottur í botn stíunnar. Mikill kostur getur verið að hafa gólf einstaklingsstíu í nokkurri hæð ffá gólfi fjóssins, sem auðveldar vinnu við þrif, léttir vinnu við gjafír og gerir allt eftirlit með kálfunum auðveldara. Best er því að smíða eins konar sökkul utan um upphækkun gólfsins. Trérimlar eða gúmmíklæddir trérimlar yftr sköfúflór eða fleytiflór geta hentað vel sem undirlag, en best er að nota hálm sem undirburð. Hæfileg rimlabreidd er 10 cm og rifúr 2,5 cm. Alls ekki ætti að nota jámristar eða steypta rimla undir smákálfa. Slík rimlagólf em of köld fyrir smá- kálfa að liggja á. Innréttingar Hliðar einstaklingsstíu eiga að vera opnar að hluta til að koma til móts við atferlisþarfir kálfanna. Ef stíumar em smíðaðar úr jámi er hæfilegt bil á milli lóðréttra rimla 8-10 cm. Til að skapa skjól í stíunni og auðvelda þrif er mikill kostur að hafa neðsta hluta stíu- hliðanna heilklæddan og er gott að miða við neðstu 30 cm. Framhlið stíunnar þarf að vera vel opin svo að kálfurinn geti auð- veldlega fylgst með. Þetta gerir kálfínn rólegri og auðveldar vinnu við gjafír. Neðsti hlutinn þarf þó að vera lokaður líkt og hliðamar. Hérlendis er vel þekkt að smíða einstaklingsstíur úr vatnsvörðum krossvið. Slíkar stíur em oft mjög góðar en brýnt er að taka tillit til þarfa kálfanna og hafa op á hlið- unum. Annar aðbúnaður Mjólkurgjafír smákálfa skipta gríðarlega miklu máli fyrstu daga ævinnar og því er mikilvægt að rétt sé staðið að gjöfúnum. Ráð- legt er að gefa kálfúnum mjólk með túttu, hvort sem er úr fötu eða kálfafóstm. Þar sem hægt er að koma slíku við, er mjög gott að hafa eingöngu túttuna inni í stí- unni sjálfri, en fötuna eða gjafa- kerfíð utan við stíuna. Til að auka endingu á túttunum er mjög gott Mynd 3. Hálmstía fyrir smákálfa. í stiunni er niðurfallsrenna til að auðvelda hreinsun. Framan við stiuna er j'ata sem gróffóðrið er gefið í. Inni i stiunni gæti verið fóstrubás. Freyr 10/2004- 13 |

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.