Freyr - 01.12.2004, Blaðsíða 16
Nýr mjólkursamningur
Hinn 10. maí 2004 var
undirritaður nýr samn-
ingur milli ríkisstjórnar
íslands og Bændasamtaka ís-
lands um starfsskilyrði mjólk-
urframleiðslunnar. Samningur-
inn gildir frá 1. september 2005
til 31. ágúst 2012. Hér á eftir
verður fjailað um helstu atriði
samningsins og þær breytingar
sem hann hefur í för með sér
frá núgildandi samningi.
Markmið samningsins:
1. Að almenn starfsskilyrði í
framleiðslu og vinnslu mjólk-
urafurða og stuðningur rikisins
við greinina stuðli að áfram-
haldandi hagræðingu, bættri
samkeppnishæfni og lægra
vöruverði.
2. Að ijárhagslegur stuðningur
ríkisins við greinina nýtist sem
best til að lækka vöruverð til
neytenda.
3. Að viðhaldið verði þeim stöð-
ugleika sem náðst hefur milli
framleiðslu og eftirspumar.
4. Að greinin fái svigrúm til að
búa sig undir aukna erlenda
samkeppni.
5. Að greinin geti þróast þannig
að nauðsynleg kynslóðaskipti
geti orðið í hópi mjólkurfram-
leiðenda og unnt sé að endur-
nýja framleiðsluaðstöðu með
eðlilegum hætti.
6. Að gætt sé sjónarmiða um
dýravelferð og heilnæmi af-
urða.
Framleiðslustýring
Samningurinn gerir ráð fyrir
óbreyttri framleiðslustýringu með
ákvörðun heildargreiðslumarks,
sem byggir á innanlandssölu.
Greiðslumark hvers lögbýlis í
upphafi samningstímans verður
sama hlutfall af heildargreiðslu-
marki og greiðslumark þess verð-
lagsárið 2004/2005. Reglur um
aðilaskipti að greiðslumarki em í
grundvallaratriðum óbreyttar en
með samningnum fylgir viljayfir-
lýsing Bændasamtaka Islands um
starfrækslu miðlunar fyrir
greiðslumark til mjólkurfram-
leiðslu.
Tekjur af
MJÓLKURFRAMLEIÐSLU
Verðlagning mjólkur frá afúrða-
stöð verður með óbreyttum hætti,
nema um annað verði samið á
samningstímanum. Gerðar verða
breytingar á lögum þannig að
samningsaðilar geti samið um það
sín á milli að hætt verði að ákveða
lágmarksverð mjólkur til fram-
leiðenda, enda þótt heildsöluverð
eftir
Ernu Bjarnadóttur,
sviðsstjóra,
Bænda-
samtökum
íslands
verði áfram ákveðið af verðlags-
nefnd.
Hins vegar er samið um fasta
íjárhæð beingreiðslna í samningn-
um. Þannig miðast heildarframlag
ríkisins til samningsins við 105
milljónir lítra. Beingreiðslur á
lítra taka því breytingum til hækk-
unar eða lækkunar samkvæmt því,
eftir því hvaða ákvörðun er tekin
um heildargreiðslumark. Beinar
greiðslur á mjólkurlítra lækka úr
100% heildarstuðningi nú í 80%
af heildarstuðningi í lok samn-
ingstímans. 20% verða hins vegar
greidd út á gripi, til kynbótastarfs
og til annarra verkefna sem skil-
greind verða með nánara sam-
komulagi fyrir 1. september 2006.
Árleg skerðing á heildarstuðn-
ingi við búgreinina verður 1% á
ári, frá og með 1. september 2006,
og minnkar heildarframlag ríkis-
ins til samningsins í heild því um
Tafla 1. Framlög og skipting þeirra, millj. kr.
Verðlags- ár Heildarfjár- hæðir Bein- qreiðslur Kynbóta °g þróunarfé Gripa- qreiðslur Ófram- leiðslu- tengdur stuðningur
2005/2006 4.000 3.900 100
2006/2007 3.960 3.465 99 396
I 2007/2008 3.920 3.381 98 392 49
2008/2009 3.881 3.299 97 388 97
2009/2010 3.842 3.218 96 384 144
2010/2011 3.804 3.139 95 380 190
2011/2012 3.766 3.014 94 376 282
116-Freyr 10/2004