Freyr

Volume

Freyr - 01.12.2004, Page 34

Freyr - 01.12.2004, Page 34
stein og því að uppruna írsk-bresk Friesian naut. Ljóst er að naut af þessum ræktunarlínum keppa að engu leyti við Holstein-blönduðu nautin um afkastagetu, enda var kynbótamat flestra reyndu naut- anna neikvætt fyrir afitrðamagn. Eins og að fram hefur komið þá liggja kostir þessarar ræktunarlínu hins vegar i góðri frjósemi og end- ingu kúnna og kjöteiginleikar eru mun betri en hjá Holstein blönd- uðum gripum, en eins og áður sagði er stór hluti kálfa, sem fæð- ist undan mjólkurkúnum, grunnur að gripum til kjötframleiðslu. Nautin af mjólkurkúastofni eru ekki í hraðri endumýjun á stöðinni vegna þess að árlega em aðeins ör- fá naut afkvæmaprófúð. Talsverður hluti sæðisins, sem stöðin framleiðir, fer á erlendan markað og er sæði einkum flutt til Englands, Astralíu og Chile. Verulegur hluti af nautastofni stöðvarinnar eru hins vegar holda- naut. Þar voru naut af um tugi holdanautakynja og sérstaklega voru þar voldug naut af Charolais og Bláum belgískum. Mikið af þessum holdanautum em fenginn af uppeldisstöðvum á meginland- Molar Arla selur smjör frá Nýja-Sjálandi í Dan- MÖRKU Dansk-sænska mjólkurfyrir- tækið Arla-Foods, sem er sam- vinnufélag danskra og sænskra kúabænda, annast dreifingu og sölu á nýsjálensku smjöri í Dan- mörku. Með sölu á því smjöri, sem ber vörumerkið Green Lea, vill Arla Fodds ná hluta af mark- aði fyrir innflutt smjör í Dan- mörku, en ódýrt erlent smjör hefur 20% af smjörmarkaðnum í Danmörku. Þrátt fyrir langan inu og á þessari sæðingastöð höfðu staðið sum af toppnautum síðustu ára í heiminum á meðal holdanauta, einkum úr hópi Char- olais-nautanna. írskar nautgripakynbætur með mjólkurkýr hafa aldrei verið tald- ar standa á sterkum grunni í sam- anburði við önnur lönd í Vestur- Evrópu. Umfang í skýrsluhaldi hefur verið litið í samanburði við flest þessi lönd og þar af leiðandi hafa afkvæmarannsóknir nauta lengst af staðið þar á fremur veik- um grunni. Mikið er byggt á inn- flutningi kynbótagripa og tölur, sem þeir hafa birt um ræktunar- framfarir í mjólkurkúm, sýna að þær eru minni en í flestum nálæg- um löndum en hafa að vísu aukist verulega á síðustu árum. Greini- legt er að írskir bændur í naut- gripa- og sauðfjárrækt eru mun minna uppteknir af hugsun um ræktunarárangur í búfjárrækt en stéttarbræður þeirra í nálægum löndum. Þetta birtist okkur í ótrú- legu samsafni blendingsgripa í framleiðslu, hvort sem um var að ræða holdanaut eða sauðfé, sem menn höfðu mjög takmarkaðar upplýsingar um hvemig væri til flutning er Green Lea ódýrara í Danmörku heldur en Lurpak smjör frá Arla-Foods. Green Lea er framleitt af stærsta mjólkurfyrirtæki Nýja- Sjálands, Fonterra, en það og Arla Foods eiga með sér sam- starf sem m.a. felst í því að Arla- Foods pakkar 26 þúsund tonn- um af smjöri árlega í neytenda- umbúðir fyrir Fonterra í pökkun- arfyrirtæki sínu í bænum Varde á Jótlandi, sem siðan fer á markað i Bretlandi. (Bondebladet nr. 34/2004). orðnir þar sem skipulag virtist ekki vera í ræktuninni. I mjólkurkúastofninum voru um miðja síðustu öld áberandi eldri þekkt bresk kyn eins og Stutthym- ingar, sem nú eru nær horfnir. Þá var írska Kerry-kynið þekkt og talsvert útbreitt en það mun nú nánast vera í algerri útrýmingar- hættu. Svartskjöldóttu kúnum fjölgaði jafn og þétt og voru þær lengi af breskum upprana, en þeg- ar flóðbylgja innflutnings á Hol- stein-gripum frá Bandaríkjunum skall á á sjöunda áratugnum náði hún einnig til Irlands. I dag er vemleg notkun á innfluttu sæði. Okkur var sagt á sæðingastöðinni að hann næmi um 20% sæðisnotk- unar í landinu og kemur í dag mest frá Hollandi, Þýskalandi og Frakklandi. Að lokum Irar standa frammi fyrir miklum breytingum á komandi ámm með auknu frelsi í viðskipmm landa á milli með landbúnaðarvörur. í heimsókninni mátti vel greina nokkrar áhyggjur bænda yfir þessu en írskur landbúnaður þarf enn að auka samkeppnisfæmi sína eins og staðan er í dag þar sem bú- in em lítil. Styrkur þeirra liggur í litlum tilkostnaði við framleiðsl- una. Það verður spennandi að sjá hver þróunin verður í kjölfar breytinga á styrkjakerfinu en í því má segja að liggi hvati til þess að auka afurðir kúnna, efla kynbætur og bæta kjötgæði. Fram til þessa hafa styrkimir fremur verið tengd- ir fjölda búíjár sem í raun hefur dregið úr hagkvæmni framleiðsl- unnar. Þá em margar tilraunir í gangi, eins og minnst var á, sem gætu skilað niðurstöðum sem leiða til ákveðinna breytinga í framleiðsluferlinu og þannig ýtt undir hagræðingu. Það verður því fróðlegt að sjá hvemig írskum bændum vegnar á komandi árum. | 34 - Freyr 10/2004

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.