Freyr - 01.12.2004, Síða 36
Tafla 1. Fasteignamat, bókfært verð og söluverð eigna í árslok 2002, í þús. kr.
Tegund eignar Fasteiqnamat Bókfært verð Söluverð
Land 235 235 441
Laxá 2.021 2.021 3.796
Ræktað land 1.973 939 3.706
Byggingar 8.017 2.141 15.057
5.336 23.000
Bústofn - 2.902 2.902
Vélar og tæki - 1.629 3.673
Mjólkurkvóti (141 þús Itr.) - 0 35.250
Mjólkurkvóti (9 þús Itr.) - 1.508 2.250
Heildarsöluverð 11.376 67.075
um er hlutafélagi óheimilt að veita
lán til að ijármagna kaup á hlutum
í félaginu og því verður lánum
ekki komið inn í hið keypta félag
nema með öðrum leiðum.
í skattalögum er sérákvæði um
frestun skattlagningar á söluhagn-
að af landi bújarða og ófyrnanleg-
um náttúruauðæfum. Akvæðið
gerir bændum, er selja jarðir sínar
ásamt ófyrnanlegum eignum,
þ.m.t. mjólkurkvóta og greiðslu-
marki, kleift að fresta skattlagn-
ingu á umtalsverðan hluta sölu-
hagnaðarins. Umrætt ákvæði gerir
það sérstaklega áhugavert að
skoða hvort og þá hvaða munur
getur verið fólginn í þvi að selja
búrekstur sem rekinn er í einstak-
lingsrekstri og hins vegar í einka-
hlutafélagi. I þessum þætti verður
fjallað um sölu búrekstrar í rekstr-
arformunum tveimur og skoðað
hvaða þýðingu hún hefúr í skatta-
legu tilliti. Möguleikar til frestun-
ar skattlagningar á söluhagnað eru
mismunandi eftir þvi hvemig sal-
an fer fram og verður ijallað um
það samhliða. Síðar verður vikið
að því hvemig kaupin koma þeim
fyrir sjónir sem hyggjast fjárfesta
í búrekstri.
1. Forsendur
Til að gera sér betur grein fyrir
hvaða þýðingu það hefur fyrir
bændur að selja búreksturinn í
mismunandi rekstrarformi er gott
að hafa tölulegt dæmi til skýring-
ar. Upplýsingar um rekstur og
efnahag kúabús, sem rekið er í
einkahlutafélagi, em fengnar úr
skattframtali vegna rekstrarársins
2002. í lok árs 2002 voru í eigu
félagsins 30 mjólkurkýr ásamt 24
geldneytum, kvígum og kálfum.
Mjólkurkvóti nemur 150 þúsund
lítrum sem að mestu leyti er frá
því úthlutun mjólkurkvótans átti
í skattalögum er sér-
ákvæði um frestun skatt-
lagningar á söluhagnað af
landi bújarða og ófyrn-
anlegum náttúruauðæf-
um. Akvæðið gerir bænd-
um, er selja jarðir sínar
ásamt ófyrnanlegum
eignum, þ.m.t. mjólkur-
kvóta og greiðslumarki,
kleift að fresta skattlagn-
ingu á umtalsverðan
hluta söluhagnaðarins
sér stað. Úthlutaður kvóti kemur
ekki fram í efnahagsreikningi
enda er stofnverð hans núll. Um 9
þúsund lítra viðbótarkvóti var
keyptur árið 2002. Á jörðinni eru
fjósbyggingar, hlöður og véla-
geymsla sem nokkuð eru komnar
til ára sinna en vel við haldið.
Ræktað land er um 53 ha. Vélar
og tæki til heyskapar eru fyrir
hendi. Jörðinni fylgja laxveiði-
hlunnindi og er fasteignamat ár-
innar ríflega kr. 2 millj. Engar
skuldir eru áhvílandi. Nú hyggjast
eigendur félagsins bregða búi og
vilja því selja félagið eða eignir
þess.
Samkvæmt upplýsingum frá
fasteignasölunni Fasteignamið-
stöðinni er algengt verð bújarða
án lausafjár, bústofns og hlunn-
inda á bilinu 20 - 30 millj. kr. allt
eftir stærð, staðsetningu og land-
gæðum. Þegar söluverðmæti
hlunninda er fundið er regla að
reiknað með tíföldum árstekjum
hlunnindanna. Tekjur af laxveið-
inni eru um 230 þús. á ári og því
má ætla að söluverðmæti árinnar
sé um 2,3 millj. Söluverð bújarð-
ar, ásamt byggingum og hlunnind-
um, er áætlað um kr. 23 millj.
Verðmæti véla og tækja er áætl-
að út frá upplýsingum í fyminga-
skýrslu einkahlutafélagsins. Sölu-
verðmæti véla og tækja er áætlað
um kr. 3,7 millj. en tekið skal fram
að hér er aðeins um nálgun að
ræða þar sem ekki er vitað um
ástand og útlit tækjanna.
í upphafi árs 2004 var lítraverð-
ið á mjólkurkvótanum á bilinu
250 - 270 kr. Þar sem um veruleg
magnkaup er að ræða er eðlilegt
að áætla söluverðið um 250 kr. á
lítrann. Heildarverðmæti 150 þús.
lítra mjólkurkvóta er því um kr.
37,5 millj.
Áætlað heildarsöluverð félags-
ins ásamt eignum, bústofni og
hlunnindum er því um 67 millj. kr.
Tafla 1 sýnir hvert fasteignamat
og bókfært verð eignanna var i lok
árs 2002 og hvemig söluverð ein-
stakra eigna skiptist. Söluverði
lands ásamt byggingum, ræktuðu
landi og hlunnindum er skipt nið-
ur á þessar eignir í hlutfalli við
gildandi fasteignamat.
| 36 -Freyr 10/2004