Freyr

Årgang

Freyr - 01.12.2004, Side 52

Freyr - 01.12.2004, Side 52
www.bufe.is Tölvukerfið MARK hefur verið opnað á Netinu á slóðinni www.bufe.is. Allir svína- og nautgripabændur eiga möguleika á að fá aðgang að MARK. Með aðgangi að MARK geta bændur pantað einstaklingsmerki og geta nú nautgripabændur nýskráð gripi, skráð burð og flutningssögu gripa. Megin hlutverk einstaklingsmerkingar er að tryggja rekjanleika búfjárafurða, einnig treysta þær ættfærslur verulega. Tölvukerfið MARK gerir það að verkum að grunnupplýsingar um búfé verða aðgengilegar á einum stað. Þannig eru gagnagrunnar búfjárskýrsluhaldsins hluti af MARK. Til að fá aðgang að MARK skal hafa samband við tölvudeild Bændasamtakanna. Einnig má senda tölvupóst á netfangið mark@bondi.is með upplýsingum um nafn, kennitölu, búsnúmer og bæjarheiti. Bændum er sendur veflykill í pósti sem er notaöur til að nýskrá sig inn í kerfið. Bændur eru hvattir til að sækja um aðgang og nýta sér þá möguleika sem MARK býður upp á Bændasamtök íslands Tölvudeild Simi: 563 0300 Netfang: mark@bondi.is

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.