Skátablaðið - 01.12.1967, Side 47
7 II W II \\
■
íW?53K}!»'o‘fJ
! ■
SPAD S 13
Spad var án efa öflugasta vopn
franska flughersins, og í höndum
flugkappa eins og Guynemer eða
Foncks, var hún svo til ósigrandi, og
þegar Guynmer hvarf þann 11. sept.
fyrir 50 árum, er hann átti yfir 50 loft-
sigra að baki sér, neituðu frönsk
skólabörn að trúa því, að þjóðhetjan
þeirra væri dáin, og sögðu, að hefði
flogið svo hátt, að hann hefði ekki
komizt niður aftur.
S 13 náði 135 mílna hámarkshraða
MC CUDDEN
með 220 ha. Hispano Suiza hreyfli,
og varð vopnuð tveim Vickers vél-
byssum. Hinn mikli hraði hennar og
styrkleiki vængjanna, sem þoldu
langar dýfur, voru aðalkostur Spad
vélanna, og voru hvorki meira né
minna 8 472 313 smíðaðar.
SE 5a
Með 200 ha. Wolsey Wiper eða
Hispano Suiza hreyfli var SE 5a
hraðfleygasta flugvél Breta, 138 míl-
ur, og henni flugu allir beztu flug-
menn þeirra, Mannock, með 73,
Bishop, sem var kanadískur, 72, og
Mc Cudden, 57 loftsigra, en flug-
sveit hans, 56. sveit, skaut niður 400
flugvélar samtals. SE 5a, hafði eins
og Spad og Fokker D7, vatnskæld-
an raðstrokkahreyfil. En vélbyssa af
Vickers gerð var á skrokknum, og
ein Lewis vélbyssa á efri vængnum,
og vélin var öll sérstaklega sterk-
byggð. Hún vó hlaðin um 2000 pund,
og hafði benzín til 21/2 stunda flugs.
SKATABLAÐIÐ
143