Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.06.1910, Side 16

Sameiningin - 01.06.1910, Side 16
112 Ef vér leyfum þannig biblíunni — gamla og nýja testamentinu — að flytja sitt eigið mál, ef vér berum saman kafla við kafla, eða, sem er enn betra, lútum valdi hennar og reynum að fylgja trúlega fyrirskipunum hennar, þá þroskast sú sannfœring lijá oss með ómót- stœðilegu afli, að ritningin hafi rétt fyrir sér, er hún telr sjálfa sig grundvallaða á guðlegri opinberan. Af þeirri rót er sprottið ritasafn opinberunarinnar, er vér nefnum biblíu. Ef vér náum föstum tökum á þessum sannleik, þá munum vér ekki láta einstakar spurningar um aldr eða hið innra samband ritanna fá mikið á oss. Opinberunin er þar, og engar breytingar á ártölum eða innra sambandi—að minnsta kosti engar breytingar, sem líkur eru til að hafi varanlegt gildi — geta raskað henni í aðal-atriðum. Ef opinberun hefir átt sér stað, þá er vissulega ekkert eðlilegra en að búast við, að saga þeirr- ar opinberunar liafi verið fœrð í letr, annaðlivort af þeim mönnum sjálfum, sem opinberunin var gefin, eða af þeim, sem stóðu fyrir innan vébönd áhrifa hennar og áttu anda hennar í ríkum mæli. Til þess að slíkt ritverk gæti í alla staði verið liœfilegt til að tjá oss liin opinber- uðu sannindi, þyrfti það að vera lífgað og gagntekið af anda þeirrar opinberunar, þótt engan veginn væri það allsstaðar jafn-háleitt að efni til; ströngustu meðhalds- menn innblástr-kenningarinnar niunu og naumast skipa Kroníkubókunum jafn-liáan sess og Jóhannesar guð- spjalli. í annan stað þvrfti ritverkið að vera svo úr garði gjört, að heild þess næði áreiðanlega þeim tilgangi sínum að veita mönnum speki til sáluhjálpar fyrir trúna á Kristi Jesú, til þess að guðsmaðrinn sé algjör og hœfr til sérhvers góðs verks. Að slíkt ritsafn sé nú til, verðr, þegar öllu er á botninn hvolft, ekki sannað með öðru en tilveru bókarinnar sjálfrar; og slíkt ritverk er til, það er biblían, eins og jafnvel hið stutta yfirlit vort hefir nú látið oss ganga úr skugga um. Að frá- gangi er bók vor hin helga næsta dásamleg; og þar sem hún sýnir, hvernig guði hefir farizt við manninn, er hún að efni til fullkomin og samróma; og svo ótœmanlega

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.