Litli Bergþór - 01.04.1991, Blaðsíða 10

Litli Bergþór - 01.04.1991, Blaðsíða 10
hafilagteitthvertféaf mörkum. EnfyrirbrúarbyggingunaáHvítááKjalvegiárið 1935 var haldin tombóla til að afla fjár til hennar, og er sagt að gefið hafi verið lamb til hennar frá hveijum bæ í sveitinni. En hvað sem tína má til um trú forfeðra okkar á það að láta ámar vemda sig fyrir óvinum, leiðinlegum nágrönnum eða húsgangslýð, og við höfum stuðst við fram- lag samfélagsins ffemur en eigið fé við að byggja brýr, er ný brú okkur nútíma Biskupstungnamönnum fagnaðarefni. Ég vil því að lokum gera orð Páls Guðmundssonar á Hjálmsstöðum að mínum. Fyrir um hálfri öld var byggð brú á Skillandsá í Laugardal. Páll vann eitthvað við brúargerðina og þegar henni var lokið skrifaði hann þetta vísukom á einn brúarbitann. Brúin standi öld af öld í straumbandi og jökum, aldrei grandi áin köld okkar nandartökum. (P.G.) Arnór Karlsson. í rokinu 3. febrúar sL urðu allmiklar skemmdir hér í sveit. Meðal húsa $em eyðilögðust var gamla samkomuhúsið á Vatnsleysu. HÁTÍÐ A SUÐURLANDI Nokkrir dagskrárpunktar. M-hátíð áSuðurlandi 1991 var sett á Selfossi 16. mars s.l. I framhaldi af því eru áætluð mikil hátíðahöld í öllum bygqöum Suðurlands fram á haust. þar sem heimafolk fær tækifæri til að sýna hvað I pví býr. Uppsveitir Arnessýslu vestan Hvítár þ.e. Biskups- tungur, Laugardalur, Grímsnes, Grafningurog Þingvallasveit, standa í þessu sambandí að kvoldvöku í Aratungu fostudaginn 12. apríl, kl. 21.00 og að barnadagskrá í Aratungu sunnu- daginn 21. apríl kl. 15.00. Hreppa- og Skeiðamenn halda sína kvöldvöku í Arnesi sömuleiðis 12. apríl kl 21.00. En föstu- daginn 26. apríl koma þeir hingað, vestur yfir Hvitá, til að skemmta okkur “Vestanmönnum” að Borg í Grímsnesi kl 21.00. Föstudaginn 3. maí höldum vér “Vestanmenn” svo austur yfir Hvítá, til að skemmta “Austanmönnum” að Flúðum, kl. 21.00. Litli - Bergþór 10

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.