Litli Bergþór - 01.04.1991, Blaðsíða 6

Litli Bergþór - 01.04.1991, Blaðsíða 6
Ég er Ijósastaur, langur og mjór, með krómmálningu. Það kviknar á mér þegar myrkur skellur á. Til þess þarf rafmagn. Benedikt Ólafsson, 10. bekk. Ég er banki, ég skrái gengið. Dollar, króna, pund og franki! Er þetta allt löglega fengið? Jóhann Haukur Björnsson, 9. bekk. Ég er gullfiskabúr með gula beinagrind á botninum. Ég er gullfiskabúr sem eWci hefur verið hreinsað Í78 daga og gullfiskarnir Sigtryggur og Sveinn fljóta á yfirborðinu og eru með niðurgang. Niðurgang af of miklu Comflakes áti. Og þess vegna er ég óhreinsað og þess vegna hefur enginn viljað þrífa mig í 78 daga. Jóhannes A. Ragnarsson, 10. bekk. Ég er tré. Ég er hátt og hef laufblöð. A sumrin eru þau græn, en á haustin fölna þau og falla til jarðar. Ég er tré. Óskaplega venjulegt tré. Jónína Kristjánsdóttir, 9. bekk. noinH22vev iápis REYKHOLTSSKÖLASKÁLD Jötunssaga. Einu sinni fyrir löngu bjó jötunn einn í helli. Áður fyrr hafði hann unað sér vel í hellinum, en nú var svo komið að honum var ekki farið að líka vistin lengur, því mannabyggðir voru komnar helst til nálægt að hans áliti. Morgun einn vaknaði hann upp við háreysti mikla og sá er hann opnaði augun að þrír menn stóðu við rúmstokkinn hjá honum. Hann spurði þá hvað þeir væru að gera þama eins og eflaust margir hefðu gert. Svömðu mennimir því til að þeir og sveitungar þeirra hygðust grafa göng þama í gegnum fjallið því að það hamlaði samgöngum á milli héraðanna. Ennfremur sögðu þeir að fjallið væri svo hátt og hrikalegt að það skyggði á himin í 50 kílómetra fjarlægð (hvaða fjall skyldi það nú vera?). Reis þá jötuninn upp úr rekkju sinni og hann líktist engum engli þá stundina. Hóf hann upp raust sína og söng þetta sem á eftir kemur. Grafið göng gjaman löng, en ekki hér, alveg sama hvað hinum megin er. Ekki veit ég með hvaða lagi hann söng þetta, en eflaust gæti einhver tónlistarmaður fundið það út. Fóm mennimir þá í burtu og ekki þarf að tíunda frekar að mikill fjaldskapur ríkti á milli jötunsins og safnaðarins í sveitinni eftir þetta. llaukur Harðarson, 10. bekk. Litli - Bergþór 6

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.