Foreldrablaðið - 16.12.1939, Síða 14

Foreldrablaðið - 16.12.1939, Síða 14
14 FORELDRABLAÐIÐ Stefán J<»iissoii: Tvær krónur eða pr jár Þegar Ríkisútgáfa námsbóka hóf starf- semi sína, létti þeim vanda af heimilun- um, er börn áttu í skóla, að velja ög kaupa námsbækur barnanna. Vanda er óhætt að segja, vegna þess, að slíku fylgdi oft ærinn vandi, og jafnvel oft óþörf fjárútlát. Börnin skiluðu stundum rangt heim til sín, hvaða bækur þau ættu að nota, og svo var keypt allt önnur námsbók, en kennarinn hafði mælzt til. Þessu fylgdu margskonar óþægindi og ekki síður fyrir heimilin, er þá urðu að afla sér nýrrar bókar; kaupa þannig tvær fyrir eina. Hitt var einnig mjög al- gengt, að einn kennari kunni bezt við að nota þessa bók, og annar hina. Yrði nú færsla milli bekkja eða kennaraskipti á einn eða annan hátt, gat þessi skoðana- munur kennaranna leitt af sér ný bóka- kaup fyrir heimilin. Allt var þetta mjög eðlilegt. Hver og einn hefir sinn smekk; sína skoðun og sína vinnuaðferð. Þannig á það og að vera. Hitt er svo einnig vel skiljanlegt og jafnframt eðlilegt, að þetta varð oft til þess að skapa óánægju hjá foreldrum í garð kennaranna og þá um leið skólanna. Gat jafnvel farið svo, að sum börnin væru bókarlaus í lengri eða skemmri tíma. En með stofnun Rík- isútgáfunnar þurrkuðust þessir erfið- leikar burt, og skal nú ekki meira um þetta rætt. En auk venjulegra bóka, í hverri grein námsins, þurfa börnin mjög mikið af pappír, skrifbókum, litum og ýmsu öðru, er tilheyrir daglegu starfi skólanna. Og eftir því sem vinnubókakerfið er meira notað við kennsluna, þarf meira af öllu slíku efni. Allt þessháttar verða heimil- Brennur ekkí aleígan ef kviknar í hjá yður? Takið ekki á yður hættuna, sem er því samfara, að hafa innbú sitt óbrunatryggt. í steinsteypuhúsum kostar hver þúsund króna trygging á innbúi frá kr. 1.80. Hringið strax í síma 1700 og tryggingin er þá í gildi. Sjdvátryqqi

x

Foreldrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.