Foreldrablaðið - 16.12.1939, Blaðsíða 27
FORELDRABLAÐIÐ
27
undirbúningskennslan meira en áður
var fengin skólunum í hendur og fer
vel á því. Þar með er þeirri kvöð létt af
heimilunum, að annast kennslu barn-
anna frá 7—10 ára aldurs, aðeins
fræðslan fram að 7 ára aldri hvílir enn
á þeim, eins og áður. En hvernig gátu
skólarnir nú bezt fullnægt þörfum
þessara ungu nemenda? Þessi skipun
hafði í för með sér mikla fjölgun í
skólunum, en húsrúm var takmarkað.
Með því móti að hafa yngri börnin sér
í skóla nokkurn hluta ársins og leggja
þá sérstaka rækt við þau, var að nokkru
leyti bætt úr húsnæðisskortinum. Þetta
fyrirkomulag sparar líka kennslu-
krafta, því að fleiri kennara þyrfti, ef
öll börnin ættu að fá fullan námstíma
þá 7 mánuði, sem aðalskólinn starfar.
Og að lokum kemur til greina það, sem
ef til vill ætti að vera þyngst á metun-
um. Nám yngri barnanna krefst annara
vinnubragða en nám þeirra eldri, og
meginhluti vetrarins, með sínu langa
myrkri og sínum hörðu veðrum, er ó-
heppilegur fyrir þau vinnubrögð.
Námið í vorskólanum.
Kennslunni er almennt hagað nokk-
uð á annan veg í vorskólanum en ann-
ars er algengast. Aðal áherzlan er
lögð á móðurmálið og auk þess reikning
og átthagafræði. Aðrar námsgreinar
er lítið sem ekkert skeytt um. í góðu
veðri er mikið verið úti í leikum og
gönguferðum. í sambandi við það, eink-
um gönguferðir, er lögð áherzla á
sumar greinar námsins t. d. átthaga-
fræðina. í maí og fyrri hluta júní er
gott tækifæri til að skoða ýmsar jurtir.
Þær eru athugaðar á gönguferðunum,
nytsemi þeirra rædd, og börnin læra að
þekkja þær. í fjörunni ber margt fyrir
Guðm. Þorsteíasson,
gnlkniiðni'
Bankastræti I '£
Sínii 4007
Ymsir munir fyrirliggjandi
lir gulli og silfri hentugir
til .TÓlACrJAEA
Líistykk j abúðín
HaSnarstræti 11
liifstykki, belti, brjóstliöld,
fjölbreytt úrval
Til jólagjafa handa konum:
Silkisokkar, nærföt,
vasaklútar, hanzkar,
tösknr, slæður.
flanda karimönnnm:
Slifsi, bindi, sokkai',
vasaveslti hvítir vasa-
klútar.
Lí f s ty kkj abúðin
Hafnarstræti 11