Foreldrablaðið - 16.12.1939, Síða 19

Foreldrablaðið - 16.12.1939, Síða 19
FORELDRABLAÐIÐ 19 sniði og verið hefur. Þó hefur sú breyt- ing verið gerð, að nám í lestri, skrift, stíl og reikningi hefur verið aukið að miklum mun, en vikulegum stundum í einstökum námsgreinum verið fækkað að sama skapi. Verður þessi breyting tilfinnanlegust í yngri bekkjunum og þeim yngstu. Þessi breyting er gerð í samræmi við það álit okkar, að þessar umræddu greinir séu höfuðnámsefni barnaskólans og eigi að vera það. Við lítum svo á, að sú undirstaða í námi, sem börnunum er mest þörf á, sé að læra að lesa vel og áheyrilega og þann- ig, að þau venjist við að reyna að skilja það, sem lesið er. Þá teljum við höfuð- nauðsyn, að þau læri að skrifa góða, læsilega rithönd á hreinu og réttu máli og að þau venjist við að hugsa það, sem þau rita niður á pappírinn. Um reikningsnámið er það að segja, að við álítum að meiri vandvirkni þurfi að gæta, en áður hefir títt verið, í því, að kenna börnum vel undirstöðu allra reikningsaðferða og temja börnunum þær, svo að hvert einasta atriði sé vandlega lært áður en tekið er fyrir það næsta. Þetta allt reynir á vandvirkni og þolinmæði kennarans, barnsins og heimilisins. Það er mjög örðugt að nema þessar umræddu undirstöðugreinir, og það er íþrótt að nema þær, svo að vel sé, hverja um sig. Þetta þurfa foreldr- ar að hafa hugfast. Ég segi þetta ekki af þeirri ástæðu, að foreldrar barna í Laugarnesskóla hafi á þessu efni ó- næmari skilning en almennt er, en al- gengustu athugasemdir foreldra barna hér í skólanum um námsframför barna sinna, eru um það, hve stutt börnin séu komin aftur eftir reikningsbókinni, en ekki um það, hve vel eða illa þau hafi lært reikningsaðferðirnar. Og ekki er það heldur ótítt, að foreldrar vilji láta barnið lesa biblíusögur, sögu, nátt- úrufræði og landafræði, þó að barnið geti lítið sem ekkert lesið. Þessir for- eldrar hugsa ekki út i allar þær sálar- kvalir, sem barnið þolir við að bíða stöðuga ósigra í náminu, af því að það kann ekki undirstöðuatriði þess náms, sem fyrir það er lagt, eða ef það er ekki við hæfi barnsins. Alveg hið sama skeður, þegar foreldrar vilja færa börnin í hærri bekki í skólanum en börnunum hæfir. : ■ ÉWÍs Alfrert & .1 úlíIIs liau^avei; 84 Síini 4023 Smíðum allsk. HÚSgÖfÍD Sanngjarnt verð

x

Foreldrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.