Foreldrablaðið - 16.12.1939, Page 22

Foreldrablaðið - 16.12.1939, Page 22
22 FORELDRABLAÐIÐ Frá skólunum AusturbæjarskóIIim. skólaáriS 1939—1940. Skólinn tók til starfa 1. september, og mættu þá til kennslu 7—10 ára börn. Kensla 11—13 ára barnanna hófst 2. okt. Alls eru nú í skól- anum 1875 nemendur, í 65 bekkjum. Fastir kennarar eru 43 auk skólastjóra, stunda- kennari er 1, forfallakennarar 9. Ennfremur er, eins og undanfarin ár, starf- rækt í skólanum deild fyrir málhölt og stam- andi börn úr Reykjavík. Stundvísi. „Sjaldan er góð vísa of oft kveðin,“ og er því rétt, einu sinni ennþá, að benda á hve nauðsyn- legt það er starfsemi skólanna að' nemendur séu stundvísir. Það er mjög bagalegt fyrir starf barnanna og kennarans, þegar þeir óstundvísu eru að smátínast inn í kennslustofuna fram undir lok fyrstu kennslustundar, auk þess sem þessi óstundvísu börn sjálf hafa þann dag misst kennslustundina að mestu. Sjá vonandi allir, hve bagalegt þetta er fyrir alla aðila, þótt lang- flestir af nemendum skólanna eilgi þann heiður að vera stundvísir, eru nokkrir það ekki. Það er vinsamleg ósk til foreldra og forráðamanna barnanna, að þeir sjái um, að öll skólabörn mæti stundvíslega. ' Hreinlæti. Nauðsynlegt er að venja börnin á hreinlæti, og hirðusemi. Það ætti aldrei að koma fyrir, að börn komi í skólann óþvegin um andlit og hendur, ögreidd og án vasaklúts. Börn, sem ekki eru hrein um hendur, eyðileggja mikið fyrr námsbækur sínar, skila ekki hreinum verkefn- um, auk þeirrar sýkingarhættu og annarra af- leiðinga, sem sóðaskapurinn hefir í för með sér. Enda þótt hreinlæti meðal skólabarnanna sé mun betra en áður var, vantar mikið á að vel sé. — Kvartanir. Þótt allir þeir, sem að skólunum standa, hafi fullan og einlægan vilja á því, að láta skóla- starfið koma að sem beztum notum fyrir allá liangaveg ÍO. Sími 3094 hlutaðeigendur, verður aldrei hjá því komizt, að einhver mistök komi fyrir, eða yfir einhverju sé að kvarta. Þar sem allt að 1900 nemendur, á aldrinum 7—14 ára, eru saman í einu skóla- húsi, þá er það ekki undarlegt, þótt stundum hlaupi snuðra á þráðinn milli bekkjarfélaga eða skólasystkina. Oftast eru þessar snurður þess eðlis, að hægt er að jafna þær, ef rétt er farið að í fyrstu. Þegar aðstandendur skólabarnanna hafa yfir einhverju að kvarta til skólans, vegna barna sinna, eru þeir beðnir að snúa sér til kennara barnsins, eða skólastjóra, og koma til viðtals sjálfir, því þótt þægilegt sé að nota símann, þá er bezt að ræða slík mál augliti til auglitis, í ró og næði, einkum ef um viðkvæm atriði er að ræða, Þá er nauðsynlegt, að aðstandendur

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.