Foreldrablaðið - 16.12.1939, Qupperneq 26

Foreldrablaðið - 16.12.1939, Qupperneq 26
26 FORELDRABLAÐIÐ Sigurður Helgason: Torskólinii Hvað er vorskóli? Þegar lenging skólaskyldunnar var lögfest með ákvæðunum um það, að börn væru skólaskyld frá 7—14 ára aldurs, var þeirri skipun komið á hér í Reykja- vík, að einn mánuður að vorinu og ann- ar að haustinu voru helgaðir 7—10 ára börnunum eingöngu. Þessi sérskóli fyrir yngri börnin hefst að vorinu 15. maí og stendur til 15. júní, en að haustinu 1. september til 1. október. Þegar talað er um vorskóla, er oft átt við bæði þessi tímabil, og svo er í þessum línum. Kennslunpi er hagað eins, og sama á við að flestu öðru leyti, bæði á vorin og haustin. í vorskólanum eru börnin 3 y2— 4 stundir daglega, en aðra tíma skóla- ársins eru þessi sömu börn aðeins 2 stundir á dag við bóklegt nám, og auk þess 2 stundir á viku í leikfimi (9 ára börn). Hvers vegna er vorskólinn starfandi? Ástæðurnar fyrir því að horfið var að þessu ráði, að hafa skólana starfandi þessa tvo aukamánuði vor og haust eru fleiri en ein. Fyrst skal geta þess, að reynslan hafði ótvírætt sýnt, að undir- búningur 10 ára barna var alls ónógur í mörgum tilfellum. Niðurfærsla skóla- skyldualdursins var því alveg nauðsyn- leg og þörfin aðkallandi. Sum heimili önnuðust að vísu þessa undirbúnings- kennslu vel, en oftast hafði hún mikinn kostnað í för með sér. Önnur hirtu ekk- ert um hana, bæði sökum getuleysis og hirðuleysis, og þó oftar það fyrra. Með niðurfærslu skólaskyldualdursins er Okkar alþekkta Mokka- og Java-kafíi er bezt. Smjörliiisið Irma Til jólauna: Lindarpennar, Skrúfblýantar, Bréfsefnakassar, Leðurvörur, töskur, veski o. fl. o. fl. Jólakort, mikið úrval. Borðdreglar og serviettur. Umbúðapappír og garn. Merkimiðar o. fl. Ennfremur allar nýútkomnar ís- lenzkar bækur. ISókaverzlun Þór. B. Þorlakssonar. Bankastræti 11. — k KLÆtíAVERZLUN & SAUMASTOFA A USTURSTRÆTl 10 Klæðskerar hiiina vancllátu

x

Foreldrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.