Foreldrablaðið - 01.02.1943, Qupperneq 14

Foreldrablaðið - 01.02.1943, Qupperneq 14
14 FÖRELDRABLAÐIÐ r Utivlist barna. „Hvað ungur nemur, gamall temur,“ segir gamalt máltæki. Venjur, sem tam- ar verða á bernskudögum, vara oft langa ævi. Til marks um þetta má nefna, að þeir, sem vöndust snemma að rísa árla úr rekkju, héldu þeirri venju með- an aldur og heilbrigði entist. Lífsvenjur vaxtarára eiga djúpar rætur í fari manna. Því veldur miklu, þegar í frum- bersku, og lengi fram eftir árum, að börn og unglingar venjist á hófsemi og reglu- semi í lífi sínu. Það er góður grundvöll- ur fyrir framtíð þeirra. Hér er ekki átt við harðstjórn og ófrelsi, því að það skap- ar ógeð og mótþróa, heldur skulu kröfur markast af sanngirni og skynsemi. Greinarkorn þetta á aðeins að vikja að útivst barna hér í Reykjavík, en ekki að vera almenn íhugun um hollar lífs- venjur. Um allmörg ár hefur farið fram at- hugun á þessu máli hér, og lögregla bæjarins látið sig þetta nokkuð skipta. Hún auglýsti útivistartíma barnanna, gekk um götur bæjarins og vísaði heim þeim börnum, sem hún varð vör úti eft- ir auglýstan tíma. Misjafnlega var þessu tekið. Sum heimili sýndu þessari starf- semi óvild og skeytingarleysi. Bar það því stundum við, að börnin komu á hæla lögreglunni út úr húsunum. Svona mun þessu enn farið sumstað- við þær, sem dýrara verði eru keyptar. En síðar nýtur það sjálft og þjóðin ávaxtanna, sem aldrei verða ofmetnir. Sigurður Thorlacius. ar. En eftir því sem ég hef haft ástæð- ur til þess að kynna mér þetta nú í vet- ur, mun nokkur framför vera. íbúum þessa bæjar, bæði yngri og eldri, verður líka að fara að skiljast það, að vandi er mikill að búa í þéttbýli, miklu meiri en í strjálbýli, sem við miðaldra fólk og eldri, ólumst upp i. Ég fer ekki að telja margt og bera saman, en get þó aðeins bent á umferðarreglur, sem verður að hafa og hlýða í borg og bæ, en lítið snerta strjálbýlið, nema á höfuðveg- um. Reykjavík er orðin svo stór bær og hefur ýmislegt að bjóða, svo að margt vekur ævintýraþrá og forvitni ung- menna. Þau fýsir því að dvelja á götum úti og sjá hið iðandi líf, sem þar bærist. Veitingakrár og kaffistofur hafa nú á síðustu 3 árum sprottið upp í bæ þessum, eins og gorkúlur á haug. Þar er oft glatt á hjalla og glaumur mikill á síðkvöldum, og til kl. 11 y2 e. h. er opið. Bretinn lætur sér nægja til kl. 10 í heimalandi sínu. Það er eigi furða, þó að börn og unglinga langi til þess að forvitnast um, hvað þarna gerist, og jafnvel að neyta þar einhvers. Stundum koma börn á þessa staði, vegna þess að þau hafa verið send til þess að kaupa bjór eða vindlinga, og er slíkt óhæfa, ekki sízt seint á kvöldin. Það er margra manna mál, að fólk í Reykjavík gangi of seint til náða. Þvi ber heldur ekki að neita að margt starfs- fólk, þótt seint gangi til starfa, kl. 9—10, er gráfölt og geispandi á daginn. Eitt- hvað er bogið við það. Mun ekki mega

x

Foreldrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.