Foreldrablaðið - 01.02.1943, Blaðsíða 18

Foreldrablaðið - 01.02.1943, Blaðsíða 18
18 FORELDRABLAÐIÐ „Því læra bðrnín málið, að það er fyrir þeim haft“. Mikill munur er á málþroska skóla- skyldra barna í Reykjavík. Óeðlilega stór hópur barnanna hefur mjög óskýran framburð og ræður ekki við beygingar algengra orða auk hins fátæklega orðaforða, sem þau hafa yfir að ráða. Nokkuð af börnunum er vel á vegi statt að þessu leyti, og sum ágætlega. Þess er full þörf að gera sér grein fyrir, hvað gera megi til lagfæringar þeim ágöllum, sem eru á málfari barn- anna. Margir gera sér það að leik og vana að tala tæpitungu við börn á unga aldri. Stundum mun þetta gert í þeim tilgangi að hjálpa barninu til að nefna hluti, er það í bráðina getur ekki nefnt réttu nafni. Þetta veldur barninu erfiði og óþægindum síðar. Það þarf að læra ann- að heiti á hlutnum en því var kennt í upphafi. Það venst á linmæli, sem verður því tamt. Og talfærin fá ekki eðlilega æfingu til að bera skýrt og greinilega fram. Tæpitungumálið getur áreiðanlega átt nokkurn þátt í því, að barnið verði vægari en allt annað. Aukning eða rén- un allra þjóðargæða, andlegra og lík- amlegra, er, þegar allt er vegið og virt, mest undir því komin, hversu til tekst um þessi mál. Spillt uppeldi og æska, sem á ekkert, sem henni er heilagt, hefur allsherjar ófarnað í eftirdragi. En því ágætara sem uppeldi er og allt ástand fræðslumála, því fleira vandamála leysist af sjálfu sér og því færri og minni verða sigrar sundrungar og kala. J. Kr. óeðlilega lengi óskýrt í framburði og linmælt. Óhætt mun að fullyrða, að lítið er talað við mörg börn í Reykjavík á heim- ilum þeirra. Þau afla sér því verulegs hluta orðaforðans utan heimilanna. Og þá fyrst og fremst meðal leikfélaganna á götunni. Er auðsætt, að það er ekki frjór eða æskilegur móðurmálsskóli. Höfuðatriðið til að efla málþroska barnanna er, að mikið sé talað við þau á heimilunum, þeim séu sagðar sögur, látin læra vísur og lesa hátt. Mér er vel ljóst, að þetta er sums staðar erfiðleikum bundið. En með góðum vilja mun þó víðast hægt að sinna þessu að einhverju leyti, og sum heimili, sem láta sig þetta litlu skipta, hafa góðar ástæður til að láta áhrifa sinna gæta til bóta á m&l- far barnanna. Ég vil nú benda á dæmi til frekari skýringar því, hvernig oft fer, þegar uppalendur láta sig þessi mál litlu varða. Mjög útbreidd málvilla hér er svo nefnd þágufallssýki. Fjöldi fólks, ungt og gam- alt, segir t. d.: mér langar, honum vant- ar, henni langar, þeim vantar o. s. frv. Allt er þetta rangt, af því að notað er þágufall í stað þolfalls. Hið rétta er: mig langar, hann vantar, hana langar, þá vantar o. s. frv. Sama gildir um fleiri sagnir, sem oft er notað skakkt fall méð. En sagnirnar að langa og að vanta eru tíðar í notkun og gera því málvilluna mjög áberandi. Nú eru þess mörg dæmi, að börn foreldra, sem taka sér aldrei þessi málspjöll í munn, eru gegnsýkt af þeim. Þar hafa foreldrarnir ekki verið

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.