Foreldrablaðið - 01.02.1943, Page 19
FORELDRABLAÐIÐ
19
á verði til að láta sitt rétta málfar
ríkja, en ytri áhrifin víkja.
Loks skal hér bent á annað dæmi.
Flámæli nefnist það, er ruglað er sam-
an e og i annars vegar og u og ö hins
vegar. Eins og kunnugt er, þá er flámæl-
ið allútbreitt í Reykjavík.
Foreldrar, sem eru laus við flámæli,
verða þess vör einn góðan veðurdag, að
börnin þeirra eru orðin flámælt. Hér
hafa verið að verki áhrif frá flámæltum
leikfélögum eða öðru flámæltu fólki, sem
börnin hafa vérið með. Foreldrarnir
mundu oftast hafa getað komið í veg
fyrir, að börnin vendust þessu hvimleiða
mállýti, ef þau hefðu gert sér grein fyr-
ir hættunni og hamlað gegn henni með
því að tala nógu mikið við börnin. Það er
að því leyti miklu tilfinnanlegrá, að
börnin smitist að óþörfu af flámælinu
en t. d. þágufallssýkinni, að það er stór-
um mun örðugra að losa sig við það síð-
ar. Ofnotkun þágufallsins ættu flestir
að geta lagfært, ef þeir hafa vilja til.
Með því t. d. að hlusta eftir tali manna,
sem treysta má, að tali rétt að þessu
leyti, og veita athygli ritmálinu.
Það, sem ég vildi vekja athygli á með
þessum línum, er þetta: Nauðsynlegt er
að tala sem mest og án allrar tæpi-
tungu við börn. Leiðrétta þarf börnin og
leiðbeina þeim, ef þau vilja nota hættu-
legar málvillur, (sbr. þágufallssýkina).
Foreldrar, sem eru ekki flámælt, verða
að vera vel á verði að hamla á móti flá-
mælishættunni, sem kann að steðja að
börnunum frá leiksystkinum þeirra eða
öðru flámæltu fólki.
Árni Þórðarson.
Leggið leið yðar
um Hafnarstrœti
EDINBORG
Foreldrar/
Hjálpíð börnunum yðar
til þess að spara. Gefið
þeim hina smekklegu
SPARISJÓÐSBA UKA
Útvegsbankaíslands h.f.
Þeir fást í 4 iitum.
Tilvalin
tækifserisgjöf.