Foreldrablaðið - 01.02.1943, Page 23
FORELDRABLAÐIÐ
23
þarf að vera vel hreint og þurrt, þegar
lyfið er notað. Hárið skal vætt rækilega
inn að hörundi upp úr lyfinu og kembt,
á meðan það er blautt, með þéttum
kambi, til þess að ná nitinni. Hárið á
ekki að þvo I viku á eftir. Quassia-spíri-
tus hefur þann kost fram yfir mörg
önnur lyf, að það er lyktarlítið og lúsa-
hettu þarf ekki að nota meðan á lækn-
ingu stendur.
Fatalús má útrýma með því að sjóða
nærföt í 15 mínútur, nema ullarföt og
önnur, sem ekki þola suðu, skal leggja
í lýsólblöndu eða annað sótthreinsunar-
lyf og smyrja grásalvi í sauma og fell-
ingar, ellegar gera þau rök og pressa
vel með heitu og þungu járni. En líkama
þess, sem lúsin er á, skal lauga daglega
úr sápuvatni 3—4 daga í röð.
Hjúkrunarkonur og skólalæknar vinna
mikil þjóðþrifastörf við stærstu barna-
skóla landsins með útrýmingu lúsa,
leiðbeiningum og aðstoð við heimili. En
þó lús hafi minnkað og hreinlæti aukizt
á síðari tímum, er lúsin enn þjóðinni til
mikillar vansæmdar. Aflúsunarstöðvar
þarf að setja á stofn í Reykjavík og
víðar um landið, og þeir, sem ekki geta
útrýmt lúsinni sjálfir af heimilum sín-
um, ættu að fá opinbera aðstoð til þess.
Geír Glgja.
Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar og
Bókabúð Áusturbœjar B.S.E. Laugav. 34
Munið!
KA K TUSMUNS TRIÐ
er það sem allir vilja
eiga, byrjið að safna
því i dag.
GUÐLAUGUR MAGNÚSSON,
gullsmiður.
Laugavegi 11. Sími 5272.