Foreldrablaðið - 01.02.1943, Blaðsíða 25

Foreldrablaðið - 01.02.1943, Blaðsíða 25
FORELDRABLAÐIÐ 25 Frá skóliiniiiii. Austurbæjarskóliim Samkvæmt nýjustu manntalsskýrslum, sem skólinn hefur í höndum, eru skólaskyld börn í umdæmi skólans alls 2105. Af þeim eru í skólanum 1640 böm. Auk þess stunda nám í skólanum 120 börn úr öðrum skólahverfum. Alls eru því skólanum 1760 börn. Önnur skólaskyld börn í skólahverfinu skiptast þannig: í öðrum löggiltum skólum 224 böm, í sveit 88 börn, í tímakennslu 133 börn. Veik em 17 böm, og 3 börn sækja ekki skóla, sökum vanrækslu heimilanna. Hreinlæti. Það má með réttu segja að nokkuð vinnist á í því að börnin komi í skólann þvegin og greidd, en þó eru alltaf nokkur böm, sem sjáaniega vanrækja þetta, sum vegna þess að þau vakna seint og segjast ekki hafa haft tíma til að þvo sér, sum vegna trassaskapar. Það er mikil upp- eldisleg nauðsyn að forráðamenn barnanna sjái um að þau gangi það snemma til hvílu, að þeim sé, vegna svefns, ekki ofraun að vakna á rétt- um tíma til þess að búa sig til skólans. Þá hefur mikið unnizt á með útrýmingu á lús og nit. Síðastliðið skólaár voru 0,7% skóla- barnanna, sem slíkt fannst hjá, og nú á þessu skólaári eru 0,3% barnanna, sem ekki hafa verið laus við nit eða lús. Hryggskeklfja. Undanfarin ár hefur nokkur hluti skólabam- anna haft nokkurn vott hryggskekkju. Hafa þau börn verið send í klappsæfingar til Jóns Þor- steinssonar, íþróttakennara. Síðastliðið skólaár, voru 40 börn send í klapps- æfingar, 22 drengir og 18 stúlkur. Sem betur fer, dregur smám saman úr tölu þeirra barna, sem senda þarf í klappsæfingar. Ljósböðin. Vegna þess hve spennan er lág á rafmagni fyrir hádegi, hefur ekki verið hægt að hafa ljósböðin fyr en kl. 12,15. Nú eru um 200 börn, sem hafa ljósböð og er tímabil það, sem hver Restaurationin í Oddfellowhúsmu Skemmtilegustu og vinsælustu > veizlusalir bæjarins. Þar skemmtið þið ykkur bezt. Fœðiskort yfir lengri og skemmri tíma. Egill Benediktsson Simar 3552 og 5122 Látið Ú tv ar pið koma auglýsingum yðar og tilkynningum til landsmanna RÍKISÚTVARPiÐ

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.