Foreldrablaðið - 01.02.1943, Síða 29
FORELDRABLAÐIÐ
29
þjappa veiður 3—4 og &tundum 5 deildum 1
kennslustofu daglega.
Dagleg störf skólans
hafa verið misfellulítil. Veikindi hafa að vísu
verið nokkur öðru hvoru, en þau hafa gengið
jafnt yfir, svo að námið má heita að hafa sótzt
vel. Aftur á móti hefur borið töluvert á skrópi,
og eiga þar einltum sök börn, sem komið hafa
ný í skólann í vetur. Það mátti þó heita, að
nærri öll börnin sæktu skólann orðið reglulega
fyrir jólin. Enda hefur verið gengið hart eftír.
Það er mjög mikilsvert, að börnin sæki skólann
alltaf reglulega. Öll undanbrögð frá skyldu-
starfi eru barninu hættuleg. Foreldrum finnst
oft ekki saknæmt, þó að barnið sleppi degi og
degi úr náminu. En hvert skipti sem barnið
veit, að það hefur ekki haft fullgilda ástæðu til
að fara ekki í skólann, dofnar skyldumeðvitund
þess. Og komi slíkt oft fyrir, getur það haft af-
drifarík áhrif á framtíð bamsins.
Þá er og mikilsvert, að barnið venjist á að
vera stundvíst. Óstundvísi venur á hirðuleysi og
ónákvæmni, sem oft snýst upp í enn hættulegri
ávana. Það er sorglegt, þegar barn kemur of
seint í skólann, vegna þess að foreldrarnir láta
það fara í sendiferð, þegar það á að fara í skól-
ann. Eða ef barn kemur ekki nógu snemma á
morgnana, vegna þess að enginn á heimilinu
hefur getað vaknað i tæka tíð. Sömu áhrif hef-
ur það á börnin, ef þau venjast á að svíkjast
um að nema einstakar sérnámsgreinir t. d.
leikfimi eða handavinnu.
Börn, sem verða af námi.
Vegna ýmissa örðugleika eiga nú mörg börn
örðugt með að stunda nám reglulega. Veldur þar
þó mestu húsnæðisvandræði fólks og flutning-
ur úr einu húsnæði í annað. En foreldrar þurfa
að vera skyldurækin við börn sín og senda þau
í skóla strax og tök eru á.
Einstakar námsgreinir skólans.
Sundnámskeið hafa verið haldin tvö í vetur.
Annað námskeiðið var stutt. (Tveggja vikna).
Það námskeið sóttu nærri öll börn í skólanum.
Það stóð frá 16.—30. sept. Hitt námskeiðið hófst
4. okt. og stóð til 20. nóv. Það námskeið var að-
allega fyrir fullnaðarprófsbörn og 12 ára börn-
in.
Hin hollu og bœtiefnaríku brauð úr
heilmöluðu hveiti eru ávallt til í
brauðsölum mínum, fyrir utan allar
þær brauðtegundir, sem ég áður hef
bafcað, og hafa farið sigurför um
borgina.
Fást á eftirtöldum stöðum:
Blómavallagötu 10 — Bræðraborgarstíg 16 —
Brœðraborgarstíg 29 (Jafet) — Vesturgötu 27
— Reykjavíkurvegi 19 (J. Bergmann). —
Laugarnesvegi 50 (Kirkjubergi) — Njálsg. 40.
Jón Símonavson
Brœðraborgarstíg 16. Sími 2273.
Þekkt innlend framleiðsla:
BOTNVÖRPUR
VÖRPUGARN
BINDIGARN
H.F. HAMPIÐJAN
Símar 4536 — 4390
Símnefni: Hampiðja