Foreldrablaðið - 01.02.1943, Side 31
FORELDRABLAÐIÐ
31
að námi loknu. Iðjuleysi og athafnaleysi handa
og huga er mesta hætta og böl.
Laugarnesskóla á gamlársdag 1942.
Jón Sigurðsson.
Skildmgariiesskóliiiii
í Skildingarnesskóla eru nú innrituð 202 börn,
og er það um 90 börnum færra en skólaárið 1939
—40, en það ár voru skólaskyld börn í hverfinu
orðin 315.
Við skólann starfa nú 6 fastir kennarar, auk
eins stunda- og forfallakennara og leikfimis-
kennara. Skólinn hefur nú kennsluhúsnæði 1
bæjarhúsunum við Smirilsveg 29.
Leikfimikennsla eldri barnanna fer fram í
íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar, en yngri barna
í í. R.^húsinu við Túngötu.
Eldri börnin fá sundnámskeið í Sundhöllinni,
að áliðnum vetri.
Skólinn gat ekki tekið til starfa að þessu
sinni fyrr en 10. nóv., og lágu til þess eftirgreind-
ar ástæður:
Aðalaðsetur skólans síðan 1936 hefur verið við
Baugsveg 7, en það hús liggur sunnan til í skóla-
hverfinu. Yngri börnunum af Holtinu hafði að
vísu verið kennt i húsi við Smirilsveginn síð-
ustu árin.
Um miðjan aprílmánuð s. 1. barst bæjaryfir-
völdunum áreiðanleg vitneskja um, að enn fleiri
hús yrðu rifin og flutt úr hverfinu, og sýnt þótti,
að húsið við Baugsveg (syðra skólahúsið) yrði
innikróað af rennibrautum. Var því ekki um
annað að gera en flýja með skólann vestur með
firðinum og.út á Grímsstaðaholt, og var hafizt
handa um það á áliðnu sumri. Enn er ekki til
fulls lokið þeim breytingum og nýbyggingu, er
gera þurfti, til þess að skólinn fengi á ný við-
unanlegan samastað.
Eins og að líkindum lætur, hefur skólinn beðið
tilfinnanlega hnekki vegna þeirra hrakninga,
er hér hefur verið lýst, og kennir þar um frum-
býlingsskapar og ónógrar festu, og mun eðlilega
engum vera þetta ljósara en skólastjórninni og
starfsliði skólans.
Reykjavík, 5. jan. 1943.
SHELL
IOTOR OIL8
VETRAROLIIJR
beztar — drýgstar.
SUELL srnurt
er vel sinurt!
JRLná
NORA
MAGAZIN
Pósthússtrœti 9
Arngr. Kristj&nsson.