Foreldrablaðið - 01.02.1943, Page 34

Foreldrablaðið - 01.02.1943, Page 34
34 FORELDRABLAÐIÐ kökurnar, vínarbrauðin o. s. frv. Sé smjör ófáanlegt, má nota bræðing í þess stað. Smjörlíkið mætti hverfa af hvers manns borði. Ávexti þarf eigi að ræða í þessu sambandi. Forsjón þjóðarinnar í innflutningsmálum hefur bannfært nýja ávexti sem innflutningsvöru, nema helzt fyrir jólin. En á hráefnum til sæl- gætisgerðar mun enginn skortur vera. Á umbúðum þessara epla, er nú komu, er hvatning um að borða meira af epl- um, heilsunnar vegna, og tekið fram, að læknar, tannlæknar og heilsufræðingar mæli með þeim. Skyldu þeir líka vilja mæla með sælgætinu okkar og skóla- kostinum, sem ég hef minnzt á? Áreið- anlega ekki! Þar til er sælgætisframleiðendur sjá ■ sér fært að framleiða sælgæti, sem er hollt neytendum, verða bæði foreldrar og skólar að vinna af alefli gegn sæl- gætiskaupum barna. En það verður eigi gert með valdboði, heldur með því að vekja skilning barnanna; og skynsöm börn eru fljót að skilja. Jafnframt þarf að benda þeim á eitthvað annað, sem þau geta lagt aurana sína í. Það fer mjög í vöxt, að börn fari í ferðalög, að námi loknu. Oftast eru þessi ferðalög stutt og tíðum farið fullhratt yfir vegna þess, að fjárráð eru lítil, enda eigi byrjað að safna í ferðasjóð, fyrr en á síðasta eða næstsíðasta ári. Legðu börn sælgætisaura sína í sjóð, frá því er þau hefja skólagöngu til fermingaraldurs, myndi sá sjóður verða svo gildur, að hver bekkur gæti farið í langt ferðalag og skoðað ýmsa merka sögustaði kynnzt nokkuð fegurð landsins, hrikaleik þess og tign. Þessa sjóði væri sjálfsagt að geyma í banka undir eftirliti barnanna sjálfra og kennara. Flyttist barn milli bekkja eða brott, fengi það sinn hluta af sjóðnum greiddan. Það þarf eitthvað að gera til að venja börn á að fara skynsamlegar með pen- inga en hér gerist. Þetta er ein leið, og ýmsar fleiri eru til. í sambandi við sælgætiskaup og skóla- kost barna, dettur mér í hug, að líklega myndi enginn geta haft jafn sterk áhrif á almenningsálitið sem hinn góðkunni læknir og núverandi félagsmálaráðherra, Jóhann Sæmundsson. Útvarpserindi hans hafa vakið mikla og maklega at- hygli. Og erindi um sælgætiskaup og skólakost barna mundi vel þegið af þjóðinni allri. Einstakir framleiðendur æskja ef til vill ekki almennra umræðna um þessi mál. En það verður að meta æsku lands- ins og þjóðarhag meira en hagsmuni fárra. Við hátíðleg tækifæri, sem helg- uð eru æskunni, er stundum sagt, að hún sé dýrmætasti auður hverrar þjóðar. Eigi þetta að vera annað og meira en innan- tóm faguryrði, verður að vinna gegn því, sem er henni án tvímæla til tjóns, og stuðla í fullri alvöru að sem heilbrigð- ustum og beztum vaxtarskilyrðum henni til handa. Marteinn Skaftfells. Staía- og orðaspil er uppeldisléga séð mjög mikil- vægt, því að það gerir námið að leik og leikinn að námi. Öll börn á skólaaldri ættu að eiga það.

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.