Foreldrablaðið - 01.02.1943, Síða 37
FORELDRABLAÐIÐ
37
Friðrik ÓlaÍKSOii. kennari.
Friðrik Ólafsson var fæddur í Reykja-
vík, 17. júlí. 1921. Hann andaðist í Lands-
spítalanum 18. desember sl.
Friðrik lauk kennaraprófi á síðast-
liðnu vori og gerðist kennari við Austur-
bæjarskólann í haust. Ég hafði engin
kynni haft af þessum unga manni, er
hann var ráðinn að skólanum, en féllst
á ráðningu hans vegna eindreginna
meðmæla formanns skólanefndar, séra
Sigurbjarnar Einarssonar. Ummæli hans
voru á þessa leið: Sá verður í engu svik-
inn, sem nýtur kennslukrafta Friðriks
Ólafssonar.
Starfstími Friðriks við skólann varð
Nú nær 14 ára barn ekki fullnaðar-
prófi í íslenzku, skrift eða reikningi, og
er það þá skólaskylt og prófskylt næsta
ár f öllum téðum greinum.
aðeins nokkrar vikur. Svo stuttur tími
getur að vísu ekki verið fullkominn
mælikvarði á kennarahæfni byrjanda.
En víst er, að Friðrik Ólafsson gengdi
starfinu af kostgæfni og trúmennsku.
Góða stjórn hafði hann á börnunum og
varð þeim auðsjáanlega hlýtt til hans.
í skólanum kom hann í hvívetna fram
sem hið mesta prúðmenni, enda var
drengskap hans við brugðið, og allir sem
höfðu af honum náin kynni.báru óskorað
traust til hans og væntu sér mikils af
starfi hans.
Sigurður Thorlacíus.
Til athnganar.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið skrif-
aði biskupi íslands þ. 27. nóv. 1942 á
þessa leið:
„Að gefnu tilefni frá fræðslumála-
stjóra vill þetta ráðuneyti hér með taka
fram, að það telur rétt að börn verði
ekki fermd fyrr en þau hafa lokið fulln-
aðarprófi samkvæmt 5. gr. fræðslulag-
anna eða burtfararprófi samkv. 21. gr.
sömu laga.
Þetta er yður, háæruverðugi herra, hér
með til vitundar gefið til birtingar fyr-
ir prestum landsins".
Þetta tilkynnist skólanefndum og
kennurum hér með.
F. h. f.
Helgi Elíasson.