Foreldrablaðið - 01.02.1943, Side 40

Foreldrablaðið - 01.02.1943, Side 40
40 FORELDRABLAÐIÐ 1 heimssiyvjöldinni 1914*18 mundu íslendingar hafa orðið að þola margs konar skort, ef hið ný- nýstofnaða EIMSKIPAFÉLA G ÍSLANDS hefði ekki með siglingum sínum til Ameríku forðað þjóð vorri frá yfir- vofandi vöruþurrð og neyð. Enn hefur EIMSKIP gerzt brautryðjandi og hafið siglingaí til Vesturheims. Munið þessar siaðreyndiv og láíið FOSSANA annasí alla fluíninga yðav. uppeldisfræðingur sagt. Þegar börnin eldast, beita þau fingrunum að leik til rannsókna í sama augnamiði, og nota þá einnig skynleiðir sjónar og heyrnar. Þau brjóta, skrúfa og kasta, þau rífa í sundur og setja saman. En um leið kynn- ast þau ástandi hlutanna og læra að á- kveða lögun þeirra og eiginleika. Þetta er dæmi um rannsóknarleiki barna, sem einnig verða þá um leið námsleikir. 3. Börn iðka leiki, sem eru í beinum tengslum við mennina, sem þau um- gangast og störf þeirra. Þau leika t. d. mömmu og pabba, eða systkini sín. Þau leika störf manna úr ýmsum stéttum. Leikir þessir hafa verið kallaðir hermi- leikir („sosum“-leikir, ímyndunarleikir). fmyndunarleikir barna beinast oft í þá átt, að barnið reynir að yfirstíga fjar- lægðir í rúmi og tíma. Það leikur t. d. hugljúfa sögupersónu frá öðru landi og þykist breyta umhverfinu í samræmi við þann tíma, sem fyrirmynd þess lifði á. Þá hjálpa ímyndunarleikir barninu til þess að setja sig í spor dýranna og skilja þau. Að lokum gera ímyndunarleikirnir barninu fært að láta „steina tala, og allt, hvað er“. Og verða slíkir leikir oft undra- verð uppbót barni, sem lifir i einveru og skortir leikfélaga. Hermi- og ímyndunarleikir gera barn- inu þannig fært að skilja athafnir full- orðna fólksins og setja sig í spor bæði manna og dýra. Hermihvötin og ímyndunarhæfileik- inn nær ekki aðeins til orðanna, málsins, heldur einnig til athafnanna og hugar- farsins, hughrifanna. Og hermileikurinn er stundum eina

x

Foreldrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.