Foreldrablaðið - 01.02.1943, Page 44

Foreldrablaðið - 01.02.1943, Page 44
44 FORELDRABLAÐIÐ Ankið hreysti barna yðar með Jþví að gefa þeim €OM FL1KE§, ALL BRA\ eða BI€€KBI§PIE§ kvðlds og morgna. Hulinn krafiur í hvetjum pakka. H. BENEDI KTSSON & CO. vitinn, sem vekur áhugann og varðar veginn um námsleiðina. Hann á að vera bætiefnið, sem gerir kennsluna að- gengilega fyrir barnið, námið ljúffengt og námsstörfin árangursrík. En sá leikur náms verður œtíð að hafa ákveðið markmið, og börnin verða að vera það þroskuð, að þau skilji náms- alvöru leiksins. Og maðurinn, sem stjórnar slíkum námsleikjum, kennarinn, verður að grandþekkja eðli þess þroskaskeiðs, sem hann vinnur fyrir og vita gjörla sitt hlutverk, til þess að allt lendi ekki í svo-kölluðum „leikaraskap". Hyggnir kennarar komast ekki hjá því að taka leikina í þjónustu námsstarfs- ins, og þá einkum hermi- og sköpunar- leikina. Það gerir námið lifandi og trygg- ir, ef vel er áhaldið, að börnin fylgist betur með, nái fastari tökum á náms- efninu og finni, óafvitandi, hvöt hjá sér til að ráðast til skarpari átaka við náms- störfin. Sú uppeldisstefna, að taka leikinn í þjónustu námsstarfsins, hugsar minna um bækur, en þá því meira um verkefni, vinnugleði og vinnutækni við námið. En foreldrar ættu að hugleiða það, að úr því, að hyggnir kennarar komast ekki hjá því að taka leikinn í þjónustu náms- starfsins, þá muni einnig happadrjúgt fyrir foreldrana að taka leik barnsins í þjónustu sína við uppeldisstarfið. Það væri, að ég ætla, vel þess vert fyrir foreldra, að kynna sér nútímaskoðanir barnasálarfræðinga um þroskagildi leiksins, og leiðir þær, sem hægt er m. a. að fara til þess að gera leikinn alhliða þroskandi við uppeldisstarfið. En þýð-

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.