Foreldrablaðið - 01.03.1945, Blaðsíða 2
Góð tækifærisgjöf
í
I
i
:
Margur er í miklum vafa um, hvað hann á að velja, þegar gleðja á góðan
vin eða ættingja. En svo vill nú vel til, að til er gjöf, sem flestum hentar,
konum sem körlum, vegleg gjöf, og verði þó stillt í hóf.
Þetta er RITSAFN EINARS HJÖRLEIFSSONAR KVARAN. — Rit-
safnið er 6 bindi, bundin í vandað skinnband, og eru þar allar skáldsögur
Einars og ljóð. Kostar kr. 350.00.
Fæst hjá öllum bóksölum.
Tvær merkar bækur
sem fjalla um íslenzka sjómenn, sjómennsku og útgerðarsögu þjóðarinnar,
koma út hjá Isafoldarprentsmiðju.
Önnur, SJÓMANNASAGA, eftir Vilhj. Þ. Gíslason, kemur út um
mánaðamót febrúar og marz. Þá bók verður hver sjómaður að eignast, enda
bíða menn bókarinnar með óþreyju.
Hin er SJÓSÓKN, endurminningar Erlends Björnssonar, hreppstjóra, á
Breiðabólstöðum, skrásettar af síra Jóni Thorarensen. I þá bók hefur Eggert
Guðmundsson, listmálari, teiknað fjölda mynda. En auk þess eru þar margar
mannamyndir, uppdrættir af Alftanesi, af fiskimiðum og ýmsu, er lýtur að
sjósókn á opnum skipum.
Bókaverzlun Isafoldar.
FORELDRABLAÐIÐ