Foreldrablaðið - 01.03.1945, Blaðsíða 21
heldur ber okkur að leggja strax sáragrisj-
ur við hið djúpa sár, binda síðan yfir með
grisjubindi og koma sjúklingnum í skyndi
til læknis eða sjúkrahúss.
Bómull má nota t. d. til þess að þvo með
í kringum sár, einnig til þess að setja í nös,
sem blæðir úr, til þess að setja í hola tönn
(vætta í tanndropum) o. fl.
Skyndiplástur, þ. e. plástrar eða plásturs-
lengjur með grisju, er hentugur til þess að
láta við minni meiðsli, skeinur og stungu-
sár, sem hreinsa skal þó áður en skyndi-
plásturinn er lagður á þau.
Heftiplástur er notaður til þess að festa
umbúðir, en aldrei lagður næst sárum.
Brunabindin má ekki taka úr umbúðun-
um fyrr en á að nota þau. Þau eru lögð beint
á brunasárið og vafið laust um til þess að
sprengja ekki blöðrur, sem kunna að hafa
myndazt.
Brunasmyrsl (sulfanilamidi) er notað við
alls konar bruna á hörundi, og er oftast
heppilegt að bera það í sáragrisju (beint úr
túpunni), sem síðan er lögð að brunasárinu.
Forðizt að láta egg, hveiti, grænsápu eða
þvílíkt næst brunasárum. Það er trú margra,
að slíkt sé gott, en er hið mesta hindurvitni.
Joðbenzín er notað til þess að hreinsa í
kringum sár. Minnizt þess, að það getur
verið eins nauðsynlegt að hreinsa vel í
kringum sárið, eins og að hreinsa sjálft sár-
ið. Joðbenzín má einnig nota til þess
að hreinsa grunnar skeinur og þvo stungur
eftir vír eða nagla.
Sáravatn er mjög sótthreinsandi vökvi,
sem nú er mikið notaður við sáraaðgerð. Ef
þið sjáið óhreinindi í skurði eða sári, ekki
mjög djúpu^þá vætið grisjubút í sáravatni
og veiðið óhreinindin upp með léttum og
liprum handtökum. Hellið síðan litlu af
vökvanum í sárið, eða látið að þvi hreinar
umbúðir, sem lagðar eru næst sarinu og
vefjið síðan með grisjubindi. Minnizt þess
að gæta ávallt hins ýtrasta hreinlætis, þeg-
ar þið handleikið sár og sáraumbúðir. Þvo-
ið ykkur rækilega um hendurnar. Þegar
bæði joðbenzín og sáravatn er við höndina,
er óþarfi að nota joðáburð, enda miklu vand-
farnara með hann.
Tanndropar eru notaðir við sárum verkj-
um í holum tönnum. Er þá venjulega bóm-
ull vætt í dropunum og sett ofan í tann-
holuna með eldspýtu.
Kamforudropar er örvandi lyf, sem notað
er við köldu, slappleika o. fl. Gefnir eru inn
20—30 dropar í ögn af vatni eða í sykurmola.
Verk- og vindeyðandi dropar eru notaðir
við sárum magaverkjum, einnig 20—30
dropar.
Asperín er notað við höfuðverk, hita,
gigtarverkjum o. fl. Venjulega eru fullorðn-
um mönnum gefnar tvær töflur, en ungling-
um 1 tafla.
FORELDRABLAÐIÐ 19