Foreldrablaðið - 01.03.1945, Blaðsíða 25
Heilbrigt líf
4. árg. 3—4 hefti er fyrir stuttu komið
út. I þetta hefti skrifar Vilmundur Jóns-
son landlæknir stórmerka grein er hann
nefnir: „Heilsuvernd á Islandi.“
I greininni farast honum meðal annars
orð á þessa leið:
„Staðgóð alþýðufræðsla og heilbrigt
þjóðaruppeldi með sérstöku tilliti til
hleypdiómalausrar heilbrigðisfræðslu mætti
sem bezt til fyrsta lestrarnáms barnsins. A
það verður aldrei lögð of mikzl áherzla.
Engum, sem ekki talar skýrt og er laus
við flámæli, ætti að leyfast að kenna lest-
ur. Og foreldrar ættu að stuðla að hreinum
framburði hjá börnum sínum með því að
tala skýrt sjálfir og leggja niður tæpitungu-
framburðinn, sem mörgum hættir til að
nota við börn, einmitt er sízt skyldi, meðan
þau eru að læra að tala. Barnið verður að
venjast skýrum og óbjöguðum framburði
frá byrjun, þá mun það líka tala skýrt, og
þá veitist því mun auðveldar að skrifa rétt.
Það mun fátítt, að saman fari leikni í rétt-
ritun og þvoglulegur framburður.
Ég hef áður í Foreldrablaðinu minnzt á
sælgætið, sætu kökurnar og gosdrykkina,
sem ótrúlega mörg börn koma með í
skólann. I vetur ber líka talsvert á hinum
nýja svaladrykk*), „Coca Cola.“ A hverri
*) Hér bregður líka fyrir nýjum drykk, sem
nefndur er „Pepsi Cola“. Honum er talið það tií
ágætis, að í hverri flösku séu 30 mg. kaffein.
Merkilegt, að framleiðendur skyldu ekki reyna að
„slá Coca Cola út“ og hafa kaffein-innihaldið 50
mg. Báðir drykkirnir eru að sögn eftir amerísk-
um forskriftum. Hef heyrt, að þeir séu bannaðir
börnum þar.
ekki sízt verða merkur þáttur almennrar
heilsuverndar.
Barátta lækna við sjúkdóma og hvers
konar aðhlynning sjúklinga er engan
veginn jafn óskyld þeirri viðleitni að tryggja
heilbrigði hinna heilbrigðu, sem oft er látið í
veðri vaka. Er þetta og ekki vefengt af nein-
um, þegar til er að dreifa næmum sjúk-
dómum, sem unnt er að beita virkum sótt-
flösku stendur, að drykkurinn innihaldi 40
mg „kaffein." Ætla verður, að þetta sé talið
drykknum til gildis, varla auglýst ella á
hverri flösku, nema vera eigi til varnaðar,
þar sem læknar og heilsufræðingar segja, að
„kaffein“ veikli taugakerfið og hjarta og
valdi svefnleysi og meltingaróreglu.
Vilja ekki foreldrar taka höndum saman
við kennara til að byggja fyrir, að börn komi
með slíka drykki í skólann fremur en mjólk?
Væri ekki líka hyggilegt að sameinast gegn
vínarbrauðafaraldrinum og neyzlu annarra
sætra brauða. Að vísu er börnunum vork-
unn, ef þau eru vön slíku góðgæti á heima-
borðum. En öll munum við þó sammála
um, að annað sé vaxandi æsku hollara og
heillavænlegra til þroska og þróttar en sæt-
ar kökur og Coca Cola. Augljóst er og, að
einhverjar alvarlegar veilur eru í lifnaðar-
háttum okkar, ella væru ekki öll sjúkrahús
full og yfirfull af fólki á bezta aldri. Við
þekkjum ekki allar orsakir þess. En þær
veilur, sem við vitum um, ber okkur ekki
að vernda og viðhalda, heldur uppræta,
hverjar sem þær eru.
Ef við sameinumst um að reyna að skapa
bernsku og æsku skilyrði til að öðlast heil-
brigða sál í heilbrigðum líkama, þá höfum
við gert skyldu okkar við framtíðina, ella
ekki.
FORELDRABLAÐIÐ 23