Foreldrablaðið - 01.03.1945, Blaðsíða 20
fón Oddgeir fónsson:
Sjúkraskrín í heimahúsum og í skólum
Ef einhver á heimilinu sker sig, brennir sig
eða meiðir á annan hátt, er bágt að standa
ráðalaus og hafa ekkert til þess að veita
sjúklingnum bráðabirgðahjálp.
Sama máli gegnir í skólunum.
Foreldrar og kennarar! Fáið ykkur lítið
skrín og kaupið það helzta, sem þarf til þess
að geta hjálpað, ef eitthvað ber út af.
Hér fara á eftir leiðbeiningar um það,
hvað þarf að hafa við höndina, og hvernig
á að nota það.
I sjúkraskríninu þarf að vera:
Grisjubindi, 10 stk. 5 cm breið og 6 stk.
8 cm breið
Sáragrisjur, 10 stk.
Bómull, 1 pk. 30 g
Brunabindi, 3 stk.
Brunasmyrsl, 1 tb.
Skyndiplástur og 1 rl. heftiplástur, 2 cm
breiður
Sáravatn, 60 g
Joðbenzín, 60 g
Tanndropar, 5 g
Kamforudropar, 30 g
Verk og vindeyðandi dropar, 20 g
Asperín, 1 gl. með 20 töflum
Lásnælur, 1 tylft
Ein lítil skæri og flísatöng.
Grisjubindi eru notuð til þess að binda
um sár. Farið þrifalega með þau. Geymið þau
t. d. ekki á rökum stað, og er þið ætlið að
nota þau, þá takið þau upp með gætni og
snertið ekki þann hluta þeirra, sem leggjast
á næst sárinu. Sáragrisjur (kompressur),
sem venjulega eru í sérstökum umbúðum,
má alls ekki taka úr umbúðunum, fyrr en
um leið og á að nota þær. Munið, að sára-
grisjur eru ætlaðar til þess eingöngu að
leggja næst stórum, djúpum sárum,. en slík
sár má ekki þvo eða hreinsa, þótt við höfum
þau sótthreinsunarlyf, sem nefnd verða síðar,
18 foHeldrablaðið