Foreldrablaðið - 01.03.1945, Page 4

Foreldrablaðið - 01.03.1945, Page 4
eftir þörfum barnanna og um fram allt kom- ið í veg fyrir þá ósvinnu að rífa börn upp úr rúmunum fyrir allar aldir í svartasta skamm- degi, hvernig sem viðrar? Verður börnum okkar tryggður nægur undirbúningur undir framhaldsnám — og skólar til þess að taka við þeim? Verði þetta gert, skulum við veita ykkur fulltingi, að öðrum kosti taki tröll ykkar tillögur. I tillögum milliþinganefndar í skólamál- um er ekki gert ráð fyrir því, að skólaskyld- an verði færð niður, þar eð víða hagar svo til á landinu, að örðugt yrði um fram- kvæmdir. Hins vegar er lagt til, að styrkur, sem nemur kennaralaunum, verði veittur bæjar- og sveitarfélögum til smábarnaskóla (þ. e. skóla fyrir börn á aldrinum 5—7 ára). Ætti það að vera mikil hvöt til að setja þá á stofn, þar sem þeirra er orðin brýn þörf. Barnaskólunum er ætlað að taka yfir sex vetur í stað sjö. Aðalbreytingin á skipulagi þeirra er sú, að þeim verður skipt í tvær deildir, yngri deild og eldri deild. Til yngri deildar teljast þrír hinir fyrri vetur, sem barnið sækir skóla, en til eldri deildar þrír hinir síðari. Höfuðrökin fyrir þeirri breyt- ingu eru í stuttu máli þessi: Allmikill mun- ur er á þroskastigi barna hin fyrstu ár í barnaskóla og hin síðari ár. Sams konar mismunar verður að gæta í kennsluháttum, ef rétt er að farið. Það er því harla óskyn- samlegt að miða kennsluna hin fyrstu ár við lokatakmark, sem á að nást eftir sex eða sjö ár. Það mark er of fjarlægt. Hyggi- legra er því að setja kennslunni markmið, sem er nær. Auk þessa mundi kennsla yngri barnanna aukast að miklum mun og henni verða meiri sómi sýndur á ýmsa lund, ef farið yrði eftir tillögum nefndarinnar. Deildaskipting svipuð þeirri, er hér hefur verið minnzt á, hefur tíðkazt víða um lönd hina síðustu áratugi. Þegar því námsstigi er náð, sem yngri deildinni er ætlað að keppa að, hefst nám í eldri deild barnaskólans. Gert er ráð fyrir, að það verði með líku sniði og nú á sér stað í efstu bekkjum barnaskólanna. Þess er þó að vænta, að námið þar megi ganga miklum mun greiðara vegna þess, að börnin komi betur undirbúin frá yngri deildinni. Það er nú til mikils óhagræðis í skólunum, að börnin eru ekki nógu vel læs og skrifandi, né heldur nógu þjálfuð í undirstöðuatriðum reiknings. Stafar þetta af hinum ónóga kennslutíma, sem yngri börnunum er ætlað- ur. Eg hygg, að það sé ekki óraunhæf bjart- sýni að ætla, að börnin verði eigi miklu skemmra á veg komin í námi sínu eftir sex vetur með hinu ráðgerða fyrirkomulagi en eftir sjö nú, án þess að þeim verði ofboðið á nokkurn hátt. Mætti það teljast góður á- vinningur. Þetta fyrsta stig skólakerfisins nefnir nefndin barnafræðslustig. Næst því tekur við gagnfræðastigið. A því stigi eru þrenns konar skólar með samræmdri námsskrá. Tveggja ára skólar þessa stigs nefnast ung- lingaskólar, ef einn vetur bætist við ung- lingaskóla, nefnist skólinn miðskóli, en bætist einn vetur við miðskóla, verður úr þvi gagn- fræðaskóli. Hverjum unglingaskóla, mið- skóla og gagnfræðaskóla er hægt að skipta í tvær deildir, verknámsdeild og bóknáms- deild eða með öðrum orðum, hver slíkur skóli verður annaðhvort verknámsdeild eða bóknámsdeild eða hvort tveggja verknáms- deild og bóknámsdeild. Unglingaskólinn verður skylduskóli, skóla- skyldu lýkur ekki fyrr en með lokaprófi þaðan. Hún lengist því um eitt ár, frá því sem nú gerist. Bóknámsdeildinni er hugað svipað hlutverk og gagnfræðadeildum menntaskólanna nú. Þar eiga unglingar að hljóta undirbúning undir menntaskóla. kennaraskóla og annað nám eða störf, sem 2 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.