Foreldrablaðið - 01.03.1945, Qupperneq 7

Foreldrablaðið - 01.03.1945, Qupperneq 7
Jón Sigurðsson: Félagslíf barna í skólum Félagslíf barna í skólum er eitt þeirra við- fangsefna skólanna, sem sérstaklega snerta uppeidið, þó að uppeldi og fræðsla barnsins fari ávallt að einhverju leyti saman. Málið er þó of umfangsmikið til þess, að hægt sé að gera því skil í stuttri grein. Þess vegna mun ég í þetta skipti aðeins ræða um einn félagsskap skólabarna. Það er að segja ungliðastarf Rauða Krossins. Ungliðastarf Rauða Krossins í barnaskól- um hefur tíðkazt víðs vegar um heim undan- farna áratugi, og starf ungliðadeildanna hef- ur mjög víða borið blessunarríkan árangur. Hér á landi voru U.R.K.I., þ. e. Ung- liðadeildir Rauða Kross íslands, stofnaðar 30. október 1939 á 29. dánardegi Henry Dunant, en hann stofnaði alþjóðlega Rauða Krossinn. Ungliðastarf íslenzku barnaskólanna er á byrjunarstigi, svo að ekki er enn hægt að dæma um árangur þess. En enginn vafi er á því, að tilgangur ungliðastarfsins er bæði hollur og göfgandi, og ég er sannfærður um, að vettvangur ungliðastarfsins er í barnaskól- unum, enda fellur ungliðastarfið mjög vel inn í störf og nám skólans. Það má að vísu deila um, hvort allur fé- lagsskapur barna á skólaskyldualdri ætti ekki að vera eingöngu í barnaskólunum. Eg hef t. d. alveg nýlega talað við bind- indisfrömuð, sem stjórnar og heldur uppi starfi í tveimur barnastúkum, og hann full- yrti, að bindindisstarf barnanna ætti að vera í sjálfum barnaskólunum og aðeins þar. Bæði vegna þess, að í skólanum væri von um meiri og betri árangur, og svo væri hætta á, að börnunum yrði íþyngt um of, ef mörg félög með ólíkum áhugamálum toguðu t börnin hvert um sig. Ég veit nú ekki, hvert álit foreldrar hafa á þessu. Ef til vill trúa sumir foreldrar einstökum félagafrömuðum betur fyrir fé- lagslegu uppeldi barna sinna en kennara barnsins síns. En þó held ég, að ástæðan liggi fremur í því, að aðrir ganga meira fram fyrir skjöldu. Hitt mun líka órannsakað, hvort kennarar almennt væru reiðubúnir að taka að sér allt félagslegt uppeldi barnanna. Ég er þó sannfærður um, að fjölmargt af því efni, sem er um hönd haft á fundum í félögum barna, væri auðveldlega hægt að fella inn í almennt fræðslu- og uppeldisstarf barnaskólanna. Mörg félög fullorðinna munu leggja hart að sér við störf í barnafélögunum í þeirri von, að börnin muni þá ganga inn í þeirra félag, þegar barnæskunni sleppir. En þessu mun fjarri fara um flesta, því að unglingar vilja yfirleitt ekki vera í neinum félagssam- tökum. Unglingurinn vil eiga sína persónu- legu vini aðeins og vera í fámennum hópi þeirra. Það væri mál út af fyrir sig, að ræða um þessi efni. En ég mun nú víkja máli mínu aftur að ungliðadeildunum og starfi þeirra. Rauði Krossinn vinnur að hvers konar líknarstarfi og fræðslu almennings um hjálp og hjúkrun, þegar meiðsli eða slys bera að höndum. En starf ungliðadeildanna er fyrst og fremst að kenna börnunum að þekkja og meta hollar lífsvenjur og temja þeim að lifa samkvæmt þeim venjum. I ungliða- deildunum eru börnunum kenndar allar helztu reglur, sem stuðla að almennu heil- brigði, og þau eru jafnframt vanin við að halda heilbrigðisreglurnar. Á fundum ung- FORELDRABLAÐIÐ 5

x

Foreldrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.