Foreldrablaðið - 01.03.1945, Qupperneq 11

Foreldrablaðið - 01.03.1945, Qupperneq 11
fónas B. fónsson: Til foreldra Erlendis gildir víðast hvar sú regla, að börn verða að sækja þann skóla, sem þeim ber að sækja samkvæmt skiptingu bæjarins í skólahverfi. Akvæðin um þetta eru það ströng, að undanþágur eru ekki veittar, nema sérstakar ástæður séu fyrir hendi. Þetta fyrir- komulag auðveldar mjög eftirlitið með skólasókn .Um leið og barn flytzt úr skóla- hverfi, ber forráðamönnum þess að til- kynna viðkomandi skólastjóra eða skrifstofu fræðslumálastjóra borgarinnar flutninginn og hvert barnið flytur. Síðan er tilkynning um flutninginn send í skóla þess skólahverfis, sem barnið flytur til. Af þessu leiðir það, að skólarnir taka ekki við börnum nema fá áður skilríki frá þeim skóla, sem þau hafa numið í. Hér í Reykjavík eru engar slíkar fastar reglur. Fjöldi barna stundar nám í öðrum bækurnar, heldur einnig — og litlu síður — til þess að efla þroska þeirra og fram- takssemi. Námfýsi og þroski fer ekki ætíð saman. Þetta ættu forráðamenn barna að athuga, þegar þeir hugsa um skólavist barna sinna. Reynslan hefur sýnt það, bæði erlendis og hérlendis, að það er síður en svo keppikefli að hraða fullnaðarprófi barna um aldur fram, nema um bráðdugleg og þroskuð börn sé að ræða. Annað hefnir sín því miður oft síðar á námsferli þeirra. T. d. munu menntaskólar og háskólar yfirleitt ekki sækjast eftir mjög ungum nemendum. Mun reynslan hafa leitt í ljós, að ekki sé rétt að hefja erfitt framhaldsnám, fyrr en nemendur hafi náð þeim þroska, andlegum og líkamlegum, sem talizt getur í samræmi við þá þekkingu, er þeir hafa aflað sér, og skólum en þeim að réttu lagi ber. For- eldrar flytja með börn sín milli skólahverfa án þess að tilkynna það viðkomandi skóla- stjóra. Hann eyðir svo oft miklum tíma og vinnu í það að leita þessi börn uppi. Stundum eru þau í öðrum skólahverfum bæjarins, annaðhvort í barnaskólunum, í einkaskólum eða tímakennslu. Stundum dveljast þau vetrarlangt í sveit eftir sumar- dvöl þar, og stundum eru þau flutt alfarin úr bænum. Ég vil því beina þeim tilmælum til foreldra, að þeir tilkynni viðkomandi skólastjóra, ef barn þeirra flytzt úr skólahverfi, hvert barnið fer og hvort það fer alfarið eða dvelur fjarvistum um skemmri tíma. Þá vil ég og benda foreldrum á, að þeim ber að ræða við skólastjóra og kennara um það, sem þeim finnst athugavert við nám þær kröfur, sem gera verður um afköst við framhaldsnámið. Það má e. t. v. segja, að ég hafi verið óþarflega margmáll um þessi tvö atriði, sem eru mergur máls míns, en þau eru í stuttu máli þetta: 1) Það er fyrst og fremst barnanna vegna, sem ganga verður ríkt eftir því, að þau sæki skóla. 2) Það er einnig vegna barnanna, að haml- að er á móti því, að börn séu látin ljúka fullnaðarprófi fyrr en þau ná 14 ára aldri, nema um bráðdugleg og þroskuð börn sé að ræða. Þetta vona ég, að forráðamenn barnanna og aðrir, sem hlut eiga að máli, athugi gaumgæfilega. FORELDRABLAÐIÐ 9

x

Foreldrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.