Foreldrablaðið - 01.03.1945, Side 12

Foreldrablaðið - 01.03.1945, Side 12
Kristinn Gíslason: Sumardvöl barna í sveitum Sumardvöl reykvíkskra barna í sveitum hófst fyrst í stórum stíl, eftir að erlent herlið hafði setzt hér að. Mönnum þótti sýnt, að komu herliðsins til landsins mundi fylgja árásahætta, einkum úr lofti. Þá mátti líklegt teljast, að slíkum árásum yrði einkum beint gegn Reykjavík, miðstöð samgöngukerfisins. Brottflutningur barna úr bænum var þá fyrst og fremst öryggisráðstöfun, sem sjálf- sögð þótti vegna árásahættunnar. Nokkrum árum áður hafði félagsskapur Oddfellowreglunnar í Reykjavík látið reisa myndarlegt barnaheimili að Silungapolli. Þar höfðu dvalizt á hverju sumri um 70 börn, sem að læknaáliti þurftu sérstakrar aðhlynn- ingar af heilsufarsástæðum. Rekstur þessa heimilis þótti þegar í upphafi takast með ágætum. Börn, sem áður höfðu verið föl og veikluleg, komu heim að hausti hress í bragði og hraustleg útlits eftir sumardvöl að Silungapolli. Orsakir þessarar breytingar voru ekki vandfundnar. Börnin höfðu lifað reglubundnu lífi við hentug skilyrði og neytt þeirrar fæðu, er bezt var fáanleg. Þá var barns þeirra eða starf skólans. I raun og veru er það skylda foreldra að fylgjast með starfi barna sinna í skólanum, enda er þeim heimilt og frjálst að koma í skólana á starfs- tíma og kynnast starfinu. Flestum kennur- um mun það kærkomið, ef foreldrar vilja ræða við þá um börnin eða koma í kennslu- stund og kynnast náminu af eigin sjón og reynd. Blaðaskrif eru venjulegast þýðingar- lítil og oft til ills eins, sérstaklega ef við- komandi hefur ekki reynt að kynna sér málin hjá réttum aðilum og ekki lagt á sig að fara sjálfur og sjá og heyra. hlutur hins heilnæma lofts efalaust ekki létt- astur á metunum. Það kom brátt í ljós, að árangur af dvöl barna á dvalarheimilum sumardvalarnefndar varð mjög hinn sami og áður hafði reynzt á Silungapolli. Börnin voru að vísu í flest- um tilfellum heilbrigð, er þau fóru á heim- ilin, en eigi að síður reyndust þau hraust- legri og tápmeiri, þegar þau komu aftur, svo að ekki varð um villzt. Þetta var skiljan- legt. Flest hin sömu skilyrði og á Silunga- polli voru fyrir hendi á öðrum barnaheimil- um. Því fór svo, að sumardvöl barna í sveit- um varð ekki aðeins nauðsynleg öryggisráð- stöfun vegna árásahættu, heldur átti hún drjúgan þátt í að auka hreysti barnanna. Það má því líklegt telja, að flestir hlutaðeigendur óski þess, að þessari starfsemi verði haldið áfram, eftir að árásahætta er með öllu úr sögunni. Jafnan mun allmargt barna hafa dvalizt á einstökum sveitaheimilum, ýmist á vegum sumardvalarnefndar eða annarra. Einnig þar mun árangurinn hafa orðið hinn sami. Börn- in komu hraustari og tápmeiri heim að hausti. Að vísu heyrðust stundum raddir, sem kvörtuðu undan viðurværi og hirðingu barna á sveitaheimilum og báru þeim illa söguna. Hafi slíkar kvartanir verið á rök- um reistar, má hiklaust telja það til undan- tekninga. Er það ekki eins dæmi, að því sé helzt á lofti haldið, sem miður fer. Að sumu leyti er stálpuðum börnum, heilsuhraustum, hollara að dveljast á sveita- heimilum en barnaheimilum. Þar fá þau færi á að læra ýmiss konar störf við sitt hæfi, og þar geta þau fengið að vinna eitthvað til gagns. Þess eru lítil tök á barnaheimilum, 10 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.