Foreldrablaðið - 01.03.1945, Side 13

Foreldrablaðið - 01.03.1945, Side 13
Barnaheimilið að Silungapolli. eins og víðast er háttað. Leikir og íþróttir geta ekki komið í stað vinnu, nema að því leyti, er snertir nauðsynlega hreyfingu og á- reynslu á líkamann. En sú hlið málsins, er veit að viðhorfi barnsins til vinnunnar, er ekki þýðingarminni. Börn virðast yfirleitt vera fús til starfa og hafa gaman af að vinna eitthvað til gagns. Eg minnist drengja á aldrinum 6—12 ára, sem ég dvaldizt með á barnaheimili s.l. sumar. Hvenær sem ég þurfti á drengj um að halda til einhverra smávika, sóttust allir eftir þeim. Enginn reyndi að komast hjá þeim, eins og margur gæti haldið. Hins vegar mátti gæta þess, að ekki vaknaði misklíð, ef einn var valinn til verksins fremur en annar. Þeir, sem ekki komust að í dag, urðu að sitja fyrir á morg- un, til þess að fullnægt yrði öllu réttlæti. Mig grunar, að óbeit margra unglinga á vinnu eigi rót sína að rekja til þess, að þeir hafi ekki vanizt henni á barnsaldri. Þegar honum lýkur, þurfa þeir að vinna fyrir sér, hvort sem þeim líkar betur eða verr. Við- brigðin verða mikil eftir allt iðjuleysið, og getur þá farið svo, að þeir skoði vinnuna að- eins sem illa nauðsyn og skerðingu á frelsi sínu, en komist aldrei í kynni við gleði þá, sem er fyrstu iaunin fyrir hvert vel unnið verk. Hún er að jafnaði einu launin, sem börnin fá, ásamt viðurkenningu annarra í orðum eða viðmóti. Eftir öðrum launum sækjast þau ekki heldur fyrst í stað. FORELDRABLAÐIÐ 1 1.

x

Foreldrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.