Foreldrablaðið - 01.03.1945, Qupperneq 16

Foreldrablaðið - 01.03.1945, Qupperneq 16
Fró skrifstofu fræðsiufulltrúa Nýju barnaskólarnir eru með allt öðru sniði en hér hefur áður tíðkazt. I Laugarnesskólanum eru skólastof- urnar byggðar utan um stóran sal, og er gengið í kennslustofur á annarri og þriðju hæð af svölum innan á salnum, en í stofur á neðstu hæð af salargólfi. Salurinn er sam- komusalur. Þar má tala við öll börnin í einu. Ur kennslustofum á neðstu hæð koma börnin fram á gólfið, en fram á svalir úr öðrum stofum. Með augnabliksfyrirvara má kalla á öll börnin til viðtals í einu. Að slíku eru mikil þægindi. Mikill hluti skól- ans hefur nú verið tekinn í notkun, en full- gert mun húsið vart fyrr en næsta haust. Heimavistin hefur nú tekið til starfa og tekur nú 23—24 börn. Byggingu Melaskólans miðar vel áfram, og má ætla, að hægt verði að taka hann að ein- hverju leyti í notkun annað haust. Verður sá skóli eitt hið glæsilegasta hús bæjarins. A efstu hæðinni verða svalir, og er gengt út á þær úr kennslustofunum á hæðinni og eins úr aðalsamkomusal skólans. Þegar Mela- skólinn tekur að fullu til starfa, rýmkast mjög í skólunum, enda er eigi vanþörf á. I barnaskólum bæjarins verða þá yfir 80 al- mennar kennslustofur auk þess húsrýmis, veltiár, og það verður enn verra fyrir hina ungu kynslóð að átta sig á breytingunni, ef við, hinir eldri, reynum ekki að hafa áhrif á hugmyndir barnanna um þessa hluti, en látum þau ausa peningum í óþarfa og stund- um beint skaðlega hluti. Okkar er ábyrgðin. Minnizt þess, að „hvað ungur nemur, gam- all temur." sem ætlað er fyrir söng, teikningu, handa- vinnu og leikfimi. Samt koma um 55 börn á hverja kennslustofu, og verður því að tvísetja í flestar stofur. Verða þá um 1100—1200 börn í hverjum skóla um sig. Barnafjöldinn. En nú er barnafjöldinn í skólunum sem hér segir: Börn Miðbæj arskólinn 1525 Austurbæj arskólinn 1825 Laugarnesskólinn 878 Skildinganesskólinn 180 Alls 4408 Aðrir skólar: Æfingadeild Kennarask. .. 72 Skóli Isaks Jónssonar 256 Landakotsskóli 206 Skóli Aðventista 21 Ymsir aðrir skólar 441 Alls 996 (Þar af 410 yngri en 7 ára). Alls stunda því 4994 skólaskyld börn nám í Reykjavík, bæði í opinberum skólum og einkaskólum. Hefur tala skólabarna í Reykjavík rúmlega tífaldast á s.l. 40 árum, eins og sjá má af eftirfarand.i töflu. Ár Tala skólabarna í Rvík 1905 400 1915 1063 1925 1705 1935 2918 1945 4994 14 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.