Foreldrablaðið - 01.03.1945, Page 17

Foreldrablaðið - 01.03.1945, Page 17
Kennarar eru samtals 112 í bæjarskólunum fjórum, og er þar með talin forstoðukona heimavist- ar Laugarnesskólans og skólastjórarnir. Auk þess eru allmargir stundakennarar, eða um 30 talsins. Arið 1905 voru aðeins 2 fastir kennarar í Reykjavík, en 24 stundakennarar. En árið 1925 voru föstu kennararnir orðnir 39, en aðeins 8 stundakennarar. Að rannsókn á ritvillum í stílum barna hafa þeir Arsæll Sigurðsson og Arni Þórðarson unnið síðast liðið ár. Rannsóknin var framkvæmd á þann hátt, að kerfisbundin verkefni voru lögð fyrir allar 12 ára deildir í barnaskól- um bæjarins og síðan unnið úr þeim úr- lausnum, er heillegar voru. Þessi rannsókn er nauðsynlegur undirbúningur að því að byggja upp hagkvæmt kerfi fyrir stafsetn- ingarkennsluna, og munu þeir Arsæll og Arni hafa góða aðstöðu til þess að semja vel uppbyggðar stafsetningaræfingar og ritreglur fyrir barnaskóla, og vona ég, að það verði þeirra næsta verkefni. Arsæll Sigurðsson hefur áður unnið að svipaðri rannsókn og auk þess rannsakað tíðni orða í algengu ritmáli, rúmlega 100 þús. orð alls. Orðtók hann stíla, bréf, les- bækur o. fl. Sams konar rannsóknir og þess- ar hafa verið framkvæmdar víða erlendis, t. d. í Svíþjóð, Englandi og Bandaríkjun- um, en íslenzku rannsóknirnar munu vart standa þeim að baki. Eftirlitskennurum í einstökum námsgreinum var fjölgað í haust. Hafa nú tveir kennarar eftirlit með skriftarkennslu, þeir Guðmundur I. Guð- jónsson, sem gegnt hefur þessu starfi við Mið- bæjarskólann frá því haustið 1937, og Hjört- ur Kristmundsson við Laugarnesskólann. Árni Þórðarson hefur verið eftirlitskenn- ari í íslenzku við Miðbæjarskólann síðan Foreldrablaðið er gefið út af Stéttarfélagi barnakennara í Reykjavík og sent ókeypis með skólabörnunum heim á heimilin. Ábyrgð og ritstjórn hafa á hendi: Ársæll Sigurðsson, Jón Sigurðsson, Magnús Magnússon. 1941, en í haust var Ársæll Sigurðsson ráðinn til sama starfs við Austurbæjarskólann og Gunnar Guðmundsson við Laugarnesskól- ann. Eins og nafnið ber með sér, er starf þeirra fólgið í eftirliti með kennslu í þess- um námsgreinum. Þeir leiðbeina kennurum, semja verkefni, prófa og líta eftir því, að sem beztur árangur náist. Snemma í vetur gerðu eftirlitskennararn- ir í íslenzku mjög nákvæma námsskrá í skriflegri íslenzku og málfræði fyrir 9—13 ára deildir, og hefur verið kennt í samræmi við hana í vetur. Þeir hafa og samið mikið af kerfisbundnum stafsetningarverkefnum fyrir sömu aldursflokka og útbýtt meðal kennara. Þessi verkefni hafa þeir samið í félagi og hafa nána samvinnu á milli sín, svo að íslenzkukennslan er vel samræmd í skólunum. Eg er ekki í nokkrum vafa um, að mikils árangurs er að vænta af starfi eftirlitskenn- aranna, enda hefur það sýnt sig á undan- förnum árum, að mikill árangur hefur orðið af starfi eftirlitskennaranna við Miðb.skól. foreldrablaðið 15

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.