Foreldrablaðið - 01.03.1945, Qupperneq 18

Foreldrablaðið - 01.03.1945, Qupperneq 18
Benedi\t ]a\obsson: Skíðaferðir skólabarna „Það mun eitthvað eftir loða hjá öllum þeim, er fjöllin skoða.“ Framfarir og kjarabætur síðustu ára eru miklar. Þó kreppir skórinn víða enn. Hið unga Island vex svo ört, að klæðin standa á beini. Manst þú eftir tunnustöfunum þín- um með leðurtáböndunum ? Ég man eftir mínum. Það voru kærkomnustu skíðin, sem ég hef eignazt. En síðan eru þrjátíu ár, og margir hlutir breytast á skemmri tíma. Nú á dögum biðja börnin um skíði úr harðviði með stálköntum og svig-táböndum og annan útbúnað eftir því. Ég hef orðið var við, að ýmsum finnst full- langt gengið í kröfum þessum, en séu þær til orðnar af réttmætri þrá unglinganna til að þreyta skíðafarir á fjöllum uppi, verður sá þáttur tæplega of dýru verði keyptur, er þann- ig fæst með hollri útivist og hreinu lofti. Oll börn eru skyld að sækja sund og leik- fimi og taka tilskilin próf. Það er örugg vissa fengin fyrir því, að börnin hafa jafnmikla þörf fyrir þetta líkamlega uppeldi og bók- námið, eigi þau að ná eðlilegum líkams- og sálarþroska. Allt nám barnanna fer fram innan húss, stundum. í slæmu húsnæði. Utivist, leikir og áreynsla undir beru lofti er hollasti líkams- ræktarskóli æskunnar. Því miður vantar fleiri og stærri opin svæði hér í Reykjavík fyrir leikjastarfsemi barna og unglinga. En Róm var ekki byggð á einum degi og Reykja- vík ekki heldur. Væntanlega greiðist úr þessum örðugleikjum, eins og svo mörg- um öðrum. „Snjórinn er kominn, eru skíðin mín til- búin? Pabbi, viltu kaupa skíði handa mér, nú er snjórinn kominn ?“ Þannig er sagt og spurt á haustin, þegar snjórinn kemur. Svo eru keypt skíði, séu þau fáanleg, en svo vandast málið. I nágrenni Reykjavíkur er hvergi gott skíðaland. Iþróttafélögin leita upp til fjalla í sína skíðaskála, og skólafólk- ið sér helzt engin önnur úrræði en að leita á sömu slóðir. Þetta viðhorf þarf að breytast. Aðstaðan til skíðaiðkana í umhverfi bæjarins þarf að batna. I Noregi, Svíþjóð og Finnlandi byrja börnin að leika sér á skíðum á aldrin- um 4—5 ára. Það eru ekki vönduð skíði, sem þessi börn nota, og ekki dýr útbúnaður. En þau leika sér af jafnmikilli ánægju fyrir því. Skíðalandið er oft ekki annað en lítill garð- ur að húsabaki. Stærri börnin leika sér á skíðum á opnum svæðum og í skemmtigörð- um. En unglingarnir þræða spor skíða- mannanna út um skógana. Yngstu skíðamennirnir sjást sjaldan með stafi, enda algengast að gefa skíðin án stafa. Þetta byggist á því, að bezt er að æfa sig í 16 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.