Foreldrablaðið - 01.03.1945, Side 19

Foreldrablaðið - 01.03.1945, Side 19
byrjun að ganga staflaust og treysta í fimi fótanna. Mér er minnisstætt, að fyrsta haustið, sem ég var við nám í Stokkhólmi, varð mér sú skyssa á, að spyrja 5—6 ára gamlan dreng, sem var að leika sér í lítilli brekku í skemmtigarði einum, að því, hvort hann ætti ekki stafi. Hann leit á mig dálítið hissa og sagði: „Nei, ég ætla að verða skíðamað- U ur. Þótt skíðalandið í umhverfi bæjarins sé ekki gott fyrir fullorðna fólkið, sem jafn- fram leitar hressingar í ferðalagi og vill því komast burt frá bænum, er óhætt að full- yrða, að börnin geta notað betur þá mögu- leika, sem bjóðast í bænum sjálfum og ná- grenni hans. Svo að eitthvað sé nefnt, mætti nefna Hljómskálagarðinn og túnin í Laugar- dalnum. Þar eru möguleikar á að bæta aðstöðuna til muna. Þegar hernáminu lýkur, rætist væntanlega úr við Elliðaár og suð- ur með Hafnarfjarðarvegi, enda eru á báð- um þeim stöðum góð skíðalönd. Undanfarin ár hafa skólastjórar barna- skólanna gefið leyfi til skíðaferða. Kennarar skólanna hafa annazt um ferðirnar og farið með börnunum. Ferðir þessar hafa haft sína þýðingu, en jafnframt sína annmarka, m. a. af þeirri ástæðu, að fjarri fer, að öll börn eigi skíði og útbúnað til slíkra ferða. Á síðastliðnu ári veitti bæjarstjórn fimmt- án þúsund krónur til skíðakaupa handa skólabörnum. Ráðgert var, að þeim yrði síð- an deilt á milli skólanna. Með þessari ráð- stöfun átti að tryggja, að engin börn þyrftu að sitja heima vegna skíðavöntunar, þegar frí væru gefin í einstökum bekkjum til skíðaferða. Þetta mál hefur hins vegar þróast þannig fyrir sérstakan skilning forráðamanna þessa bæjar, að ráðgerð eru árleg námskeið fyrir öll börn í þrettán-ára-bekkjum barnaskól- anna. Af þessu leiðir, að sú ákvörðun hefur verið tekin, að úthluta ekki þeim skíðurn, sem keypt hafa verið handa barnaskólunum, heldur koma upp dálitlu skíðasafni fyrir hið væntanlega námskeið barnanna. Bæjarsjóður greiðir fyrir kennslu, húsnæði o. fl., en börnin borga ferðakostnað og fæði. Það er sannfærin mín, að námskeið þessi geti orðið þarfur liður í uppeldi barnanna. Þau fá að læra undirstöðu skíðaíþróttarinnar, kynnast fjallavist og undirbúningi vetrar- ferðalaga o. fl. Landið, sem við búum í, er ekki byggilegt fyrir aðra en dugandi menn og konur. Herðing hinnar ungu kynslóðar er því þýð- ingarmikill þáttur í uppeldi þjóðarinnar. A þessu ári eru liðin 125 ár síðan fyrsta íslenzka barnið var sent til málleysingja- nám í Danmörku, en 77 ár síðan hafin var kennsla málleysingja í landinu sjálfu. s.l. 36 ár hefur frú Margrét Rasmus veitt Málleysingjaskólanum forstöðu. Nú hefur vel menntaður, ungur áhuga- maður tekið við stjórn Málleysingjaskolans, og er gott til þess að vita, að svo vel hefur til tekizt um val forstöðumannsins. J. S. FORELDRABLAÐIÐ 17

x

Foreldrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.