Unga Ísland - 01.11.1955, Blaðsíða 5

Unga Ísland - 01.11.1955, Blaðsíða 5
vapsorif á fjálfrar altiar afmæli Það er liðin hálf öld síðan Unga ísland hóf göngu sína. Það veltur á ýmsu, hvort manni finnst hálf öld langur tími eða skammur. Ungir lesendur munu telja það langan tíma og álíta það fólk, sem svo lengi hefur lifað, karla og kerlingar, enda þótt því hinu sama fólki, finnist það með réttu vera á léttasta skeiði. Og svo er um Unga ísland sjálft. Það er enn, að hálfri öld liðinni, Unga ísland og hyggst vera ungt áfram og fylgja æsku landsins, hversu sem aldir kunna yfir það að renna. I heiminum hefur á mörgu gengið á þess- ari hálfu öld, og ekki hefur það allt verið af hinu góða, nema síður sé. Með frámuna- legu sundurlyndi og oft með hreinum barnaskap, sem jafnvel ykkur börn- um má blöskra, hefur fullorðna fólkið oft fært yfir heiminn ótrúlegar hörmungar, sem erfitt hefur reynzt að bæta fyrir. Til dæmis, hefur það háð tvær styrjaldir, sem voru svo víðtækar, að þeim var gefið nafnið, heimsstyrjaldir og það með réttu. Þá var smíðað hvert morðvopnið öðru stórkost- legra, en auðvitað fleygði jafnframt ýmsri tækni fram um leið. Sannast þar máltækið: „Fátt er svo með öllu illt, að ekki boði nokkuð gott.“ Seint á þessari hálfu öld, er tækni manna enda svo langt komið, að þeim tekst að leysa orku atómsins úr læð- ingi og hefst með því sú atómöld, sem enn er óráðið, hvort verður mannkyni til bless- unar eða tortímingar. Atómorkan getur, ef rétt er á haldið, veitt mannkyninu Ijós og yl og ótæmandi orku, en hún getur líka, ef heimskulega er á haldið, eytt öllum mannheimi. Því skal heldur ekki neitað, að á þessari hálfu öld hefur líka miðað langt í aukinni mannúð, réttlæti og skilningi þjóða á milli. Rauði Krossinn, mannúðar- stofnun sú, er nær um allan heim, (en ís- landsdeild þeirrar stofnunar á Unga fsland), hefur með síauknu starfi, linað margvís- legar þjáningar milljóna manna um víðan heim. Og nú gefa þau frjálsu samtök þjóð- anna, sem urðu til seint á þessari hálfu öld, Sameinaðar þjóðir, góðar vonir um, að framtíðin verði fortíðinni b_|artari í mann- heimum. Hér, með okkar litlu þjóð, hafa einnig svo margir og merkir hlutir gerzt á þessari hálfu öld, að ætla mætti að margar aldir hefðu liðið, enda ævintýri líkast. Þá rættust helgustu draumar þjóðarinnar um frelsi og sjálfræði og óskir hennar voru uppfylltar, er hún stofnaði aftur íslenzkt lýðveldi á hinum fornhelgu Þingvöllum árið 1944. Það á ekki sinn líka með öðrum þjóðum, hversu allri tækni, atvinnuháttum, félags- málum og hagsæld hefur fleygt ört fram á þessari hálfu öld. Það er eins og einhver tæknileg töfradís hafi snortið land og þjóð sínum undrasprota og verið óspör á hinar tæknilegu gjafir. Hætt er reyndar við, að það velti á okkur sjálfum að skapa úr þessu hamingju í óráðinni framtíð, því þessi gæði ein tryggja ekki hamingju, svo ágæt sem þau kunna að vera. Hér skal aðeins viðað að smávegis sam- anburði á því, sem var hér á landi, er Unga ísland varð til og hinu, sem nú er, og engum lesanda láð, þó að honum kunni þá að finn- ast, sem blaðið hafi verið stofnað aftur í svörtustu forneskju. Hugsið ykkur landið vegalaust að mestu og fallvötnin óbrúuð. Hugsið ykkur langar lestir af baggahestum eða klunnalegum hestvögnum brjótast áfram um vegleysurn- ar. Hugsið ykkur, að hvergi sæist bifreið, hvergi „skellinaðra" og tæpast nokkurt reiðhjól, nema undrum sætti. Þannig var hér þá. Hugsið ykkur að hvergi sæist dráttar- vél né aðrar búvélar, en aðeins hross til dráttar og hrífa, orf og Ijár til heyskapar- þarfa. Svpna var í sveitum landsins þá. Hugsið ykkur, að enginn sæist togarinn, enginn „Fossanna", ekkert „Fellanna", hvorki „Herðubreið" né „Skjaldbreið", UNGA ÍSLAND 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.