Unga Ísland - 01.11.1955, Page 17
Islendingur
Nóbelsverðlaunaskáld.
Unga ísland vill ekki láta hjá líða, að
vekja athygli ungra lesenda í þeim Islend-
ingi, sem nú nýverið hefur varpað mestum
frægðarljóma á land okkar og þjóð. Hann
er nú liðlega eldri en Unga ísland sjálft,
en hefur á þeirri hálfri öld, sem síðast er
liðin, háð mikla hetjubaráttu fyrir því
hugðarefni, er tók hug hans ungan. Hann
hefur af frábærri viljafestu sigrast á þeim
erfiðleikum, er íslenzkum sveitadreng
hljóta að mæta, áður en hann getur hlotið
heimsfrægð. En nú hefur hann gert að
veruleika gamla ævintýrið um Karlsson í
Garðshorni, er að lokum vann kóngsdótt-
urina og kóngsríkið um leið.
Þessi íslendingur er skáldið Halldór
Kiljan Laxness.
Hann þáði nú fyrir skömmu úr hendi
Gústafs 6. Svíakonungs æðstu verðlaun,
sem í heimi eru veitt fyrir afrek í bók-
menntum, bókmenntaverðlaun Nóbels.
Þessi heimsfrægð varpar að sjálfsögðu
einnig ljóma á íslenzka þjóð og endurvekur
minningar um forna bókmenntafrægð
hennar, en hún má um leið vera ungu fólki
hvatning og barátta hans fyrirmynd. En
gefið nú vel gaum að því, sem hann sagði,
er hann tók við þessum verðlaunum. Þar
kann hann þakkir fleirum en þeim, er verð-
launin veittu.
Hér fer á eftir útdráttur úr þakkarræðu
hans:
......Ég hugsaði einmitt til þeirra und-
ursamlegu manna og kvenna þjóðdjúpsins,
sem veittu mér fóstur. Ég hugsaði til föður
míns og móður minnar, og ég hugsaði sér í
lagi til hennar ömmu minnar gömlu, sem
var búin að kenna mér ótal vísur úr forn-
öld áður en ég lærði að lesa. Ég hugsaði og
hugsa enn á þessari stundu til þeirra heil-
ræða sem hún innrætti mér barni: að gera
öngri skepnu mein, að lifa svo að jafnan
skipuðu öndvegi í huga mér þeir menn, sem
eru kallaðir snauðir og litlir fyrir sér, að
gleyma aldrei, að þeir, sem hafa verið beitt-
ir órétti eða farið góðra hluta á mis, þeir
sem hafa verið settir hjá í tilverunni, ein-
mitt þeir væru mennimir, sem ættu skilið
alúð, ást og virðingu fólksins unfram aðra
menn hér á íslandi.........“
UNGA ÍSLAND
15