Unga Ísland - 01.11.1955, Síða 20

Unga Ísland - 01.11.1955, Síða 20
Tunglskinseyjan Hér hefst m.jöff skemmtileg: frumhaldssagra. Söguhetjurnar eru tveir drengir, Billi ogr Jói. Annar er hvítur, en hinn er svartur. Þrátt fyrir þennan litarmun, þola þeir súrt og- sætt saman í bezta bróðerni, svo sem öllum jarðarbörnum ber að g-era. Þeir eru á skipi, — það ferst. Þeir finna annað skip, — það er mannlaust. — Ja, var það nú alveg mannlaust? Þeir lenda í ótrúiegmn ævintýrum á sjó og á landi — á „Tunglskinseyjunni". — Það er sannarlega ómaksins vert, að ganga á land á þeirri dularfullu eyju, og vera með þeim í öllum hættum og ævintýrum. — Þar skeður nú hitt og þetta. Verið því með þeim strákunum frá byrjun, honum Billa og honuni Jóa. SKIPIÐ FERST. „Æ, hvíti drengur, gefðu mér mat!“ hvíslaði rödd rétt við eyrað á léttadrengn- um, er hann var á leiðinni niður í skips- lestina, til þess að sækja matvæli fyrir mat- sveininn. Bill Norton leit snögg við og kom þá auga á negradreng, sem virtist vera á aldur við hann sjálfan. Hann var greinilega að- framkominn af hungri og dauðskelfdur, og hvíslaði því að Billa, að hann hefði laumast um borð, — hann var laumufarþegi. „Bíddu hérna svolitla stund,“ hvíslaði Billi og safnaði í skyndi saman varningi þeim, er hann átti að sækja. „Ég kem aftur eins fljótt og ég get, — feldu þig á meðan!“ Síðan flýtti hann sér á fund matsveinsins, sem að venju hreytti í hann ónotum. Billi lét það lítt á sig fá, en beið færis, unz hann fékk næði til að laumast niður til negra- stráksins. „Hvað heitir þú,“ spurði Billi. „Og hvern- ig tókst þér að komast um borð?“ „Ég heiti Jói,“ svaraði negrastrákurinn, og hámaði í sig þykka brauðsneið, sem Billi hafði laumað í vasa sinn ásamt nokkrum kjötleifum. „Ég átti heima í stóru borginni, sem skipið sigldi frá síðast, — en mig lang- aði svo mikið heim til míns eigin lands.“ Billa var það ekki fyllilega Ijóst hvaða land það væri, en Jói lýsti því harla ógreini- lega, að þar væri mikið sólskyn, birta, ylur og pálmatré — auk óþrjótandi matar Og nú hefði hann laumast um borð í skipið „Máfinn“, sem hann heyrði að ætti að sigla til Suðurhafa, til pálmalandanna. Hann hafði í nokkra daga satt hungur sitt á dálitlu nesti, sem hann hafði haft meðferðis, auk vatnsflösku til þess að svala þorstanum. En nú var hvorutveggja þrotið. í raunum sínum vogaði hann sér'að ávarpa Billa, er hann sá, að hann var á svipuðum aldri og hann sjálfur. Hann hafði stundum komið auga á ein- hverja af skipshöfninni og stóð mikill stuggur af þeim, enda dró Billi ekki úr 18 UNGA ÍSLAND

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.