Unga Ísland - 01.11.1955, Síða 27
Veggskápur og skrifbord
Víða hagar þannig til að húsnæði þarf að
nýta sem bezt.
Og allir munu á einu máli um, að skrif-
borð í einhverri mynd sé nauðsynlegur hlut-
ur í herbergi drengjanna og einnig telpn-
anna.
Veggskápurinn hérna á myndinni er góð
lausn í þessu vandamáli.
Víðast hvar er hægt að koma skáp fyrir
á veggi, en hurðin fyrir þessum skáp er
prýðilegt skrifborð, þegar hún er lögð nið-
ur. Að sjálfsögðu er réttast að hver og einn
ákveði stærð skápsins, en teikningin af hon-
um er svo greinileg, að lagtækir ungling-
ar ættu að geta smíðað hann með sæmi-
legum árangri.
1. mynd er skurðarmynd af skápnum.
A er hurðin, lögð niður. B er listi, sem
negldur er við bak skápsins, undir neðstu
hilluna (D) og styður við hurðina, þegar
hún liggur niðri. Hurðin leikur um ás eða
gildar skrúfur, sem ganga í gegn um hlið-
arborðin og inn í kantana á hurðinni.
E er framhlið á tveimur hólfum, sem
hallar lítið eitt fram að ofan; sjá nánar 2.
mynd af skápnum, en þar sézt inn í hann
að framan.
I framhlið hólfanna E má nota krossvið.
Á 2. mynd sjáið þið, að á milli neðstu hill-
unnar D og hólfanna E, eru tvær milligerð-
ir eða skilrúm, er mynda þrjú hólf, sem öll
eru opin fram úr. Skilrúmin eru negld á
sinn stað áður en hillurnar eru settar í
skápinn; en undir hilluendunum eru listar,
sem skrúfaðir eru innan á hliðamar. At-
hugið, að neðan við neðri hilluna D er
skápurinn opinn. Hurðin notar það rúm,
þegar hún er lögð niður.
Á 3. mynd situr drengur við skrifborð
sitt og skrifar sendibréf.
Á 4. mynd er skápurinn á veggnum lok-
aður með krók og lykkju, sjá C.
Þeir mörgu drengir og unglingar, sem
beðið hafa um „almennilegt smíðaverk-
efni“, fá nú, vonandi, ósk sína uppfyllta.
En þá mega þeir ekki kasta til höndunum
við verkið, heldur minnast þess, að „verkið
lofar meistarann".
UNGA ÍSLAND
25